Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 6
4
VALSBLAÐIÐ
Hin skelegga stjórn Vals:
Fremri röð f. v.: Ægir Ferdinandsson formaður. Friðjón Friðjónsson, Þórður Þor-
kelsson, Einar Björnsson.
Aftari röð: Páll Jörundsson. Elías Hergeirsson, Jón Kristjánsson og Garðar Jóhanns-
son. Á myndina vantar Stefán Hallgrímsson, en hann var að vinna við Skíðaskálann,
þegar myndin var tekin.
stæðu. Mjög margir tóku til máls
og var áhugi mikill og góður hugur
í mönnum.
Þá kom stjórnin á fundi hjá
Fulltrúaráðinu og gaf þar skýrsl-
ur um gang mála í félagsstarfinu.
Þegar eftir sigurinn í Islands-
mótinu var efnt til móttöku í fé-
lagsheimilinu. Komu þangað nær
100 gestir. Veitingar voru fram
bornar af rausn og myndarskap.
Margar ræður haldnar, þar sem
Val var árnað allra heilla með
hinn ágæta sigur og heiðurstitilinn
„Bezta knattspyrnufélag íslands
1967.“ Þá var einnig minnzt sigurs
V. fl., en piltarnir þar urðu líka
Islandsmeistarar í sínu móti. Voru
hvorir tveggja Islandsmeistararnir
hylltir með ferföldu húrrahrópi.
Var samkoma þess öll hin skemmti-
legasta og stóð í nær tvo tíma.
Badmintondeild stofnuð.
Undanfarin ár hefir stundum
verið rætt um stofnun badminton-
deildar innan félagsins, en ekki
orðið úr framkvæmdum fyrr en
nú. En hinn 11. sept. var efnt til
stofnfundar, voru stofnendur
margir og almennur áhugi ríkj-
andi. F ormaður deildarinnar er Páll
Jörundsson, en aðrir í stjórn eru:
Tage Ammendrup, Örn Ingólfsson,
Ormar Skeggjason og Sigurður
Guðjónsson.
Fjármálin.
Eins og áður, er sá vandinn hvað
mestur, að afla tekna til fram-
kvæmdanna. Happdrætti ISI, sem
verið hefir í gangi undanfarin ár,
hefir gefið allverulega í aðra hönd,
og er eða getur verið allöruggur
tekjustofn, en það hefur verið hvað
örðugast að fá tryggan tekjustofn
fyrir félögin. StjórnlSláþvívissu-
lega miklar þakkir skildar fyrir
að gefa félaginu tækifæri á að afla
sér þannig fjár til starfsemi sinn-
ar, sem þó fer eftir getu og dugn-
aði hvers einstaklings í félaginu
hversu aflast hverju sinni. Árang-
urinn hjá Valsmönnum í þessu til-
liti virðist ætla á þessu starfsári
að verða góður.
Valsblaðið.
kom út eins og að undanförnu,
stórt og vandað. Kom blaðið út um
jólin. Var þar m.a. rakin starf-
semi félagsins á árinu auk ýmis-
konar greina um íþróttamenn. —
Sömu félagarnir og áður sáu um
blaðið.
Frá aðalfundi
knattspyrnudeildarinnar
Helztu atriði
úr störfum fess,
Á aðalfundi deildarinnar 20.
nóv. 1966 voru eftirtaldir menn
kosnir í stjórn og skiptu þannig
með sér verkum: Elías Hergeirs-
son formaður, Ægir Ferdinands-
son varaform., Árni Njálsson
gjaldkeri, Skúli Steinsson ritari
og Árni Pétursson spjaldskrár-
ritari. Varastjórn Gísli Sigurðs-
son, Þorsteinn Friðþjófsson, Sig-
urður Marelsson. Er Ægir var
kosinn formaður Vals varð sú
breyting á stjórninni að Gísli Sig-
urðsson varð ritari en Skúli Steins-
son varaformaður.
FuIItrúar.
Skipaðir eru eftirtaldir menn,
fulltrúar félagsins:
A. K.R.R.
aðalfulltrúi: Einar Björnsson,
varafulltrúi: Friðjón B. Frið-
jónsson.
B. Mótanefnd eldri flokka:
aðalfulltrúi: Árni Pétursson,
C. Mótanefnd yngri flokka var
lögð niður.
Æfing og þjálfun.
Stjórnin var svo lánsöm að hafa
í starfi reynda og góða þjálfara, og
voru þeir: Fyrir 1- og 2. flokk
Óli B. Jónsson, fyrir 3. og 4. flokk,
Róbert Jónsson, fyrir 5. flokk Lár-
us Loftsson. Til aðstoðar Róbert
Að lokum.
Hér hefir aðeins verið stiklað á
stóru um starfsemi aðalstjórnar,
en í skýrslu stjórnarinnar á vænt-
anlegum aðalfundi mun verða nán-
ar greint frá störfunum. Vill
stjórnin svo að lokum þakka öllum
Valsfélögum margþætt störf þeirra
fyrir félagið á árinu sem er að
kveðja um leið og þess er vænzt að
enn sé róðurinn hertur fyrir Val
félagslega og íþróttalega.