Valsblaðið - 24.12.1967, Page 25

Valsblaðið - 24.12.1967, Page 25
VALSBLAÐIÐ 23 Fyrstu sigurvegarar Vals í móti 1919. Fremsta röð f. v. Angantýr Guðmundsson, Marino Erlendsson, Markús Helgason. Önnur röð: Magnús Guðbrandsson, þjálfari, Aðalsteinn Guðmundsson, Ingi Þ. Gíslason, Sigurður Haukdal Sigurðsson, Óskar Bjarnason og síra Friðrik með bikarinn. Aftasta röð: Pétur Kristinsson, Halldór Árnason, Daníel Þorkelsson, Hannes Pálsson og Gunnar Guðjónsson. var bót í máli að oftast voru áhorf- endur, sem ekki voru sporlatir, svo keppendur þurftu ekki að eyða orkunni í slík hlaup. Viðstaddir kappleikinn voru drengir úr Aust- urbænum, enda var hann undir- búinn með miklum fyrirvara, og fregnir af honuni bárust, víða um og vildu ungir drengir því sjá þessa viðureign. Leikurinn fór líka fram á sunnudegi. Leikar fóru svo að Þór vanu Skjöld og þar með bikarinn, sem keppt var um á Kóngsmel vorið 1917, eða fyrir réttum 50 árum! Litlu síðar leystust þessi félög upp. Flestir af okkar félögum sem héldu áfram knattspyrnunni, fóru í Val, en félagar í Þór fóru margir í Fram, og urðu sumir þeirra með- al þekktustu knattspyrnumanna landsins, eins og áður getur. Til er mynd af liði þessu, en það þótti sjálfsagt að taka mynd til minningar um þessa atburði. Fyrsti sigur Vals í móti 1919. Fyrsta knattspyrnumótið sem Valur vann var 2. fl. mótið 1919. Ég keppti í tveimur síðustu leikjum mótsins, var byrjaður sjómennsku, þótt ungur væri, en einhver mun hafa forfallazt, og var ég þá kom- inn í land og tekinn í liðið sem vinstri framherji. Daníel Þorkells- son var miðherji og fyrirliði okkar liðs. Hann segir í 25. tölubl. Vals um 2. fl. mótið 1919: ,,Ég man nú ekki mikið úr þessu móti, þegar við unnum, en ég man að það var mikil gleði í hópnum og þegar á eftir haldið til ljósmyndarans til þess að festa viðburðinn á mynd, og er sú mynd til, og farið vartil kaffidrykkju í KFUM á eftir. Ég man eftir leik við Víking vegna þess að völlurinn var svo blautur og forarleðjan svo mikil að það tók næstum í ökla og við komum knett- inum ekki nema fáa metra, þótt við leggðum alla orku í spyrnuna.“ Þetta er rétt lýsing á viðburð- inum hjá Daníel, eftir því sem við Aðalsteinn munum, en ég tók ekki þátt í umræddum leik við Víking, Samt var úrslitaleikurinn við Vík- ing og var ég þá kominn í liðið. Leikur sá sem Daníel lýsir, var dæmdur ógildur, sennilega vegna ástands vallarins, sem áður er lýst, og öðru sem ekki var í samræmi við 2. fl. mót. Urslitaleikur mótsins var við Víking, eins og áður segir, og stóðu leikar svo að Víkingi dugði jafn- tefli til þess að vinna mótið. Leik- urinn fór fram á gamla Melavell- inum. I fyrri hálfleik var ekkert mark skorað, en skömmu fyrir leikslok gera Valsmenn áhlaup, sem endaði með því að Halldór eða Daníel gáfu boltann til mín á vinstri vallarhelmingi, og skoraði ég þetta eina mark leiksins. — Skömmu síðar voru leikslok, og man ég sérstaklega eftir því að eldri félagarnir úr 1. fl. (nú meist- arafl.) þustu inná völlinn með miklum fagnaðarlátum og þrifu mig á gullstól nokkurn spöl á göng- unni út af vellinum, og kunni ég illa við mig í slíku sviðsljósi. Ég man líka vel eftir því að sig- urgleðin fékk annan svip í návist sr. Friðriks. Hann vildi kenna okk- ur að ganga hægt um gleðinnar dyr, og kunna líka að taka ósigr- um með réttu hugarfari. Eftir þetta fækkaði þeim kapp- leikjum, sem ég tók þátt í, en ekki neita ég því að knattspyrnusýkill- inn leyndist í blóðinu í mörg ár, og alltaf gladdist ég innilega yfir sigr- um Vals, sem voru margir um og upp úr 1930. Þegar litið er hálfa öld til baka, kemur í ljós að heilbrigðir leikir æskunnar geymast sem lítill ljós- geisli í fylgsnum minninganna.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.