Valsblaðið - 24.12.1967, Page 32

Valsblaðið - 24.12.1967, Page 32
30 VALSBLAÐIÐ Þorsteinn Einarsson sextugur Þorsteinn Einarsson, skyttan fræga, sem allar varnir óttuðust. »-----------------------------------------------------------------------------------æ „Þið skuluð athuga það, drengir mínir, að það eru engir skussar, sem þið leikið við í dag“. Þetta var okkur „innprentað“, er við fórum út í úrslitaleikinn 1930, segir Þorsteinn Einarsson miðherji KIÍ á þeim tíma. »-----------------------------------------------------------------------------------8 Við hér í ritstjórn þessa blaðs höfum oft skyggnzt yfir garðinn til grannans, ef sérstakt tæki- færi hefur gefizt, og sagt frá ýmsu, sem þar gerist. Að þessu sinni ger- um við eiginlega meira, við reynum að skyggnast inn í aðra veröld, eða annað ríki, þ. e.: ríki K. R. í Vesturbænum. Við höfum valið til frásagnarinnar mann sem á drengjaárum sínum var í Val, og nú fyrir nokkru gerðist styrktar- félagi Vals. Tilefnið ef til vill fyrst og fremst, að hann átti sex- tugsafmæli 6. febrúar s. 1. I þessa hálfu öld sem leið á milli þess að hann æfði með Val á Vals- vellinum á Melunum(þarsemMela- völlurinn er nú) undir handleiðslu Jóns Guðmundssonar (síðar verzl- unarstjóri hjá Járnvörudeild Zim- sen), og þar til hann gerðist styrkt- arfélagi í Val, hefur hann lifað og hrærzt í hinu hálflokaða knatt- spyrnuríki í Vesturbænum. Þessi maður er Þorsteinn Einarsson, sem allir muna frá hans tíma á knatt- spyrnuvellinum, og vafalaust margir af hinum yngri þekkja vegna orðróms hans sem snillings í meðferð knattar, og þá ekki sízt sem ein bezta skytta sem hér hefur leikið með íslenzku knattspyrnu- félagi. Okkur sem lékum í vörn Vals í þá daga, stóð alltaf stuggur af Steina. við óttuðumst hann, enda var hann mesti ógnvaldur hverri vörn þeirra tíma. Þorsteinn hafði margt það, sem góðan knattspyrnumann má prýða, og má það fyrst og fremst nefna, að hann tók íþrótt sína al- varlega, þannig að hann æfði manna mest, og ég minnist þess, að þegar ég var að byrja hér, sá ég hann nokkrum sinnum á ,,KR-vell- inum" sem þá var, þar sem hann var einn ásamt markverði, og skaut á hann án afláts. Mig furðaði mest á því hve skotviss hann var, því varla fór meira en fjórði hver knöttur fram hjá markinu, og um það bil annað hvert skot gaf mark. Það vakti líka athygli mína og und- irstrikar öryggi hans, að hann spyrnti alltaf strax er knötturinn kom til hans, hvort sem hann kom úr lofti eða veltandi. Til að fyrir- byggja misskilning, var ég þarna af tilviljun, en ekki til að njósna um þá KR-inga! I þessari elju hans við skotæfing- ar má finna ástæðuna til skotör- yggis hans, næstum hvernig sem hann stóð að knettinum, og ekki er að efa að þetta gaf KR margan sigurinn, en setti aftur á móti „grá hár“ í höfuð okkar verjenda! Þorsteinn tamdi sér þegar frá upp- hafi sérstætt hlaupalag; stutt, tíð skref, sem gaf honum gott jafn- vægi, og gerði hann þéttan fyrir í

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.