Valsblaðið - 24.12.1967, Qupperneq 39

Valsblaðið - 24.12.1967, Qupperneq 39
VALSBLAÐIÐ 37 um við svo heppnir að hafa hann Lárus sem þjálfara. Eftirminnilegustu atvikin frá liðnu sumri eru úrslitaleikirnir þrír við Víking, sem enduðu með því að við unnum á „straffíi". Einar Kjartansson. Annar leikurinn verður mér líka minnistæður, vegna atviks sem þar kom fyrir. Það er dæmd vítaspyrna á Víking, og þar sem leikar voru jafnir, þótti það víst mikill ábyrgð- arhluti að taka hana, það fékkst því enginn til þess. Strákarnir leggja þá hart að mér að taka spyrnuna, og þeir segja um leið að. þeir skuli ekkert skamma mig þó mér mistakist. Böndin bárust því að mér og eins og í einhverri vímu hleyp ég að knettinum og ætla honum að fara í bláhornið, en þá fór hann í stöngina, og ekk- ert úrslita-mark. Ég bjóst við skammagusu frá strákunum, en þeir stóðu við loforð sitt, og þögðu, en ég býst við að mér hafi liðið mun verr en þeim. Hefurðu skorað mörg mörk? Einar virtist fara svolítið hjá sér, og dró svarið, en þá skýtur félagi hans, Grímur Sæmundsson, inn í: Hann er markahæstur í flokknum, og t. d. skoraði hann í einum leik 7 mörk. í einum þessara leikja kom fyrir dálítið einstætt atvik. Eg var kom- inn innfyrir vörn Víkings, og tel mig eiga aðeins eftir að skora, en þá skeður það að varnarmaður stígur svo harkalega niður af mér skóinn að ég stend þarna allt í einu á sokkaleistanum á öðrum fæti. Mér varð svo um þetta að ég stanza, en hugkvæmdist ekki að halda áfram á sokkaleistanum og skora, en það hefði ég átt að gera! Ég er ánægður með allt í Val og hef gaman af að lifa þar og hrær- ast, og ég ætla að halda áfram í fjórða flokki, en ég kveð fimmta flokk í haust, segir þessi knálegi piltur að lokum. Sævar Guðjónsson - ÍU ára - U- fl. Fyrirliói í A-liöinu. Ég byrjaði að æfa þegar ég var 10 ára, en aðeins örfáum sinnum, ég kom víst þrisvar, en þegar ég var 11 ára byrjaði ég fyrir alvöru, og það ár lék ég í fimmta C., byrj- aði sem hægri framvörður. Næsta ár lék ég svo í A-liðinu, og hef keppt þar síðan. Ég veit nú varla hvað mér er minnistæðast úr þessum leikjum, ég hef haft gaman af því að vera með, þó er mér alltaf eftirminni- legur úrslitaleikur í 5 fl. 1965. Það var hörku barátta við Víkinga, og á leikinn, og Sævar Guðjónsson. leikar standa 2:1 Víking í vil. Völl- urinn var mjög blautur og ekki minna en 5 cm. leðjulag á honum. og því vont að hemja knöttinn. Mikil spenna var í öllum, bæði okkur sem stóðum í þessu og eins þeim, sem utan vallar voru. Þjálf- arinn kallar og skipar að annar framvörðurinn skuli koma aftur og loka vörninni, en hann er of seinn, því Víkingur skaust inn- fyrir um litla smugu, og æðir að markinu, og markmaður aðeins einn til varnar. Við höldum niðri í okkur andanum ofurspenntir að fylgjast með því hvað skeður. Og Víkingurinn þrumar að markinu, en skotið var ekki hnitmiðað í þessu svaði og kemur markmaður höndum á knöttinn og fellur hann í leðjuna og situr þar fastur. Víkingurinn hyggur nú enn gott til glóðarinnar, þar sem enginn markmaður var nú fyrir í mark- inu, og hyggst þruma enn á ný, en nú tókst svo til að hann reiknar knöttinn skakkt, og hittir hann ekki, og þá er markmaður ekki seinn á sér að kasta sér í svaðið nokkuð langt liðið og handsama knöttinn! Við önd- uðum léttara, en þarna skall hurð nærri hælum. Þá man ég vel eftir leiknum við KR í Islandsmótinu. Við ætluðum heldur betur að vinna þann leik, og þetta leit vel út í hálfleik var staðan 2:1 okkur í vil, og bættum einu við rétt í byrjun síðari hálf- leiks. En þá hefja KR-ingar mikla sókn, og harða baráttu. Við vorum líka óheppnir að markmaður okk- ar meiðist svolítið, og svo fór að KR-ingum tókst að jafna 3:3, þetta var í leiðindaveðri, roki og rigningu. Ég var óánægður með þessi úr- slit, við hefðum átt að fá meira út úr leiknum. Mér finnst líka að við hefðum átt að fá meira út úr sumrinu miðað við getu liðsins, en við vorum óheppnir hvað það snertir að beztu liðsmenn okkar voru oft í ferðalögum bæði innan- lands og utan, eða í sveit, þegar aðalleikirnir og mótin fóru fram. Já, ég ætla að halda áfram, við göngum 10 upp í þriðja flokk, og ég vona að hinir haldi áfram líka. Þeir fá ekki að hætta, sagði Svavar brosandi! Mér finnst líka svo gam- an að iðka knattspyrnu, að ég vil ekki missa af þeirri skemmtun, við þessar ágætu aðstæður á Hlíð- arenda. Magnús Magnússon 13 ára, U. fl. (Magnús er sonur Magnúsar Bergsteinssonar, sem eldri Vals- mönnum er minnistæður). Ég byrjaði að æfa knattspyrnu, þegar ég var 6 ára, og gekk þá í Val, en ég var orðinn 10 ára, þeg- ar ég fór að keppa, og þá í 5. fl. C. Þá lék ég í stöðu hægra framvarð- ar, og eftir það hef ég leikið með. Mér finnst það skemmtilegt. Við höfum líka haft svo góðan þjálf- ara, hann Róbert. Ég held ég muni ekki neitt sérstakt atvik í leikjum, það er alltaf gaman að keppa. Þó man ég hvað ég varð leiður, þegar við kepptum í 5. fl. A uppi á Akra- nesi, og töpuðum 2:3. Þetta gekk svo ágætlega til að byrja með, og í hálfleik stóðu leikar 2:0 okkur í vil, og allt leit svo vel út. En þá tók óheppnin að elta okkur. Það er skotið á markið hjá okkur af
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.