Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 40
38
VALSBLAÐIÐ
Magnús
Magnússon.
mjög löngu færi, og einhvernveg-
inn fór knötturinn í markið, og
nokkru síðar er enn skotið af löngu
færi, en markmaður heldur að
knötturinn fari framhjá, en hann
fór í hornið, og svo kom þriðja
markið, sem var álíka mikil
óheppni og lauk leiknum með sigri
Akraness 3:2.
skemmtilegt skeð, ég man t. d.
eftir leiknum uppi á Akranesi í 5.
fl., og vorum hálf taugaóstyrkir
fyrir leikinn og þegar í byrjun
leiksins að miðherjinn þeirra
þarna uppfrá skaut hörkuskoti í
stöngina, leizt okkur ekki meira
en svo á þetta, en við jöfnuðum
okkur og leiknum lauk með 2:0
okkur í vil. Ég man líka eftir mjög
skemmtilegum og sérstæðum leik
á Akranesi í 4. fl. og lékum við
þá á grasinu þar. Var þetta leikur
í Islandsmótinu. Við skorum fyrst,
síðan komast þeir í 4:1. Við eigum
næsta sprett og komumst í 3:4, og
þannig var leikstaðan í hálfleik.
Við höldum áfram eftir leikhlé og
komumst í 6:4. Þá taka þeir sprett
og skora, en leiknum lauk með 7:5
I sumar vorum við í öðru sæti í
öllum mótunum, en Fram er sterk-
ast eins og er. Ég er sæmilega á-
nægður með frammistöðu flokksins
í sumar í heild.
Strákarnir mættu yfirleitt vel á
æfingar í sumar, og vona ég að
þeir haldi allir áfram að.æfa næsta
sumar, og það ætla ég sannarlega
að gera.
Þegar Magnús var spurður,
hvaða knattspyrnumann í meist-
araflokki hann vildi helzt taka sér
til fyrirmyndar, kýmdi hann góð-
látlega, og sagði: Hermann Gunn-
arsson.
Vilhjálmur Kjartansson
15 ára, - 3. fl.
Þegar ég fluttist á Nönnugöt-
una, þá 10 ára, byrjaði ég að fara
á æfingar hjá Val, ég held að
Murdo hafi þá verið þjálfari. Ég
byrjaði sem markmaður í 5. C.
Næsta ár lék ég svo í 5. B, og þá
hægri útherja, og þegar ég er svo
12 ára er ég framvörður, og hef
verið þar síðan. Mér finnst
skemmtilegast að leika framvörð,
en það er erfitt, eða það finnst
mér. Ég sé sannarlega ekki eftir
að hafa farið að æfa knattspyrnu.
Ég veit ekki hvað ég hefði átt að
gera við allar frístundirnar, sem
til falla, og á þessu tímabili hef
ég verið heppinn. Ég hef tvisvar
orðið Islandsmeistari, eða í 5. og 4.
flokki.
Á þessum árum hefur margt
Vilhjálmur fyrirliSi í 3. fl.
í handlcnattleik.
Það virðist sem Vilhjálmur sé
ekki við eina fjölina felldur, því
hann hefur náð góðum árangri í
handknattleik, og er þar fyrirliði.
Um handknattleikinn sagði Vil-
hjálmur m. a.:
Ég byrjaði 14 ára að leika hand-
knattleik í Val, og tók að keppa í
handknattleik það ár, og það virð-
ist ganga allsæmilega. Mér finnst
líka að þessi flokkur ætti að ná
langt ef hann æfir vel og heldur
saman. Það mæta margir á æfing-
um, og við höfum góðan þjálfara
þar sem er Sigurður Dagsson, að
ógleymdum Stefáni Sandholt. Legg
áherzlu á að komið verði á fund-
um innan flokksins.
Annars er ég ánægður með and-
ann í flokknum og félagslífið, og
vona að sem flestir haldi áfram
sem ég hef leikið með, sagði Vil-
hjálmur að lokum.
Því má skjóta hér inn að það
virðist sem f jölskylda hans sé veru-
leg Valsfjölskylda, því það leika
tveir bræður í þriðja flokki, og í
fimmta flokki leikur Einar bróðir
þeirra (sjá viðtal hér að framan)
og 9 ára snáði bíður þess að árin
líði til að komast að! Og kýminn á
svip sagði Vilhjálmur að hann
væri farinn að æfa systur sína í að
grípa knött, að vísu væri hún ekki
nema tveggja ára ennþá!
Stefán Gunnarsson fyrirliði,
16 ára.
Ég get víst ekki sagt að ég hafi
byrjað að iðka knattspyrnu, þegar
ég var lítill, ég hef víst aldrei verið
lítill, en ég var þó ekki nema 6 ára,
þegar ég byrjaði að æfa í Val. Ég
fylgdist með strákunum úr Hlíðun-
um á Valsvöllinn, og mér fannst
alltaf gaman að vera þar, og leika
mér að knetti. Ég hef líklega verið
7—8 ára þegar ég lék fyrsta leik-
inn í Valsbúningi, það var milli
KR og Vals, ungir strákar, sem
ekki komust að í 4. flokki. Við
unnum leikinn 1:0, og er mér
minnistætt, að við fengum allir
sérstakt áritað skjal fyrir þátttök-
una, og það afhent við hátíðlegt
tækifæri. Þá var ég miðvörður, síð-
an hef ég leikið í öllum stöðum í
liðinu nema í marki, og sem út-
Vilhjálmur
Kjartansson.
Val í vil, þama voru mörg falleg
skot á báða bóga, sem gáfu 12
mörk!
Mér finnst skemmtilegt að æfa
á grasi. og gaman væri að leik-
irnir færu einnig fram á grasi.
Mér virðist sem þess verði ekki
langt að bíða að við í Val getum
æft á grasi mestan hluta sumars-
ins, eftir að búið er að rækta svo
mikið upp af svæði Vals, og þá um
leið hlíft meira stóra grasvellin-
um.
Ég er ákveðinn að halda áfram
að skemmta mér við knattspyrn-
una, ég er líka nokkuð bjartsýnn
með þriðja flokkinn næsta sumar
því það ganga fáir upp í ár, og
takmarkið verður alltaf að vera að
ná lengra en hinir.
Ég er hrifnastur af þeim Reyni
Jónssyni og Hermanni Gunnars-
syni, og reyni að tileinka mér það
sem þeir sýna best og kunna, og ég
vona að það takist smátt og smátt.
Mér finnst félagsandinn innan
Vals mjög góður og vona að það
haldist.