Valsblaðið - 24.12.1967, Page 45
V ALSBLAÐIÐ
43
Hann býr yfir niikilli þekkingu á
handknattleik, er glöggur, og ákaf-
lega áhugasamur. Hann hefur líka
meiri reynslu en venjulegt er um
handknattleiksþjálfara. — Ég tel
mikið happ fyrir Val að hafa feng-
ið slíkan þjálfara. Það væri synd
ef maður með þessa þekkingu fengi
fólkið ekki til að mæta á æfingar,
og notaði sér ekki af þessu. Ég
vona að drengirnir kunni að meta
það og það sýna þeir bezt með því
að mæta vel og stundvíslega. Vona
að við getum haldið honum sem
lengst.
Hvað vilt þú segja um félags-
lífið og starfið yfirleitt?
Mér finnst mikið starfað og að
félagslífið sé gott, og þó má alltaf
bæta það. I þessu sambandi vil ég
benda á, og ég hef áður gert hér í
blaðinu, að ég teldi eðlilegt að nota
Félagsheimilið meira en gert hef-
ur verið undanfarið. Koma þar til
afnot fyrir keppnisflokka og aðra
þá sem æfa íþróttir í félaginu, og
aðra félagsmenn, sem þar vildu
stanza, í þægilegu og notalegu um-
hverfi.
Fólkið þarf að spjalla saman í
gamni og alvöru, og má vera að af
þeim sökum dvelji það stundum of
lengi í búningsklefum og á göng-
um íþróttahússins, sem ekki er
æskilegt. Þetta mætti ef til vill
laga með því að hafa Félagsheim-
ilið opið tiltekin kvöld. Finnst mér
fyllsta ástæða til þess að formenn
deilda og Félagsheimilisnefnd könn-
uðu möguleika á þessu. Mér finnst
þetta herzlumunurinn í félagsstarf-
inu, að fólkið geti hitzt og spjallað
saman utan æfinganna.
Já, ég er ánægður með breyting-
una í fyrrahaust, þetta var orðið
svo erfitt, allt saman, og ánægður
með að fá Ragnar með í þjálfun
meistaraflokks karla, og satt að
segja er þetta nóg samt sem ég hef
á minni könnu. En það er nú ein-
hvernveginn svo að hugur minn
stefnir nú meir að yngra fólkinu,
segir Þórarinn að lokum.
F.H.
Meistaraflokkur karla í hand-
knattleik: Fremri röð frá
vinstri: Gunnsteinn Skúlason,
Bergur Guðnason, Jón Breið-
fjörð, Finnbogi Kristjánsson og
Hermann Gunnarsson. Aftari
röð frá vinstri: Stefán Sand-
holt, Bjarni Jónsson, Jón
Ágústsson, Ágúst Ögmundsson,
Jón H. Karlsson, Sigurður
Dagsson og Stefán Bergsson.
Þjálfarar flokksins eru þeir
Ragnar Jónsson og Þórarinn
Eyþórsson.
Þeir, sem með haudknattleik
fylgjast bæði innan Vals og ut-
an, undrast oft stórlega hve
misjafna leiki þessir ungu og
bráðefnilegu handknattleiks-
piltar Vals sýna. — Þó er það
nú svo, að í vetur hefur meist-
araflokkur karla sýnt á köflum
heilsteyptan handknattleik. —
Valsmenn! Nú er það ósk okk-
ar að sem stytzt verði í Islands-
meistaratitilinn, því þið hafið
getuna, aðstöðuna og þjálfara,
sem gert getur þetta mögulegt.