Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 48
46
VALSBLAÐIÐ
Hér skorar Valur fyrsta mark sitt í keppni þessari, og eru þó margir til varnar.
83 mínúturnar, en þrátt fyrir það
hefði sigur verið mögulegur. —
Bæði liðin léku eftir 4:2:4 leik-
aðferðinni, en frá byrjun sýndi það
sig að Jeunesse var of taugaspennt
og náði ekki saman.
Snemma í leiknum urðu þeir 1:0
undir, og verkaði það sem kalt
steypubað fyrir þá, en Valur fékk
uppörvun, og gerði vörn Jeunesse
erfitt fyrir. — Franski dómarinn
varð hvað eftir annað að grípa til
vasabókarinnar vegna hörku Is-
lendinganna. Góður möguleiki til
að jafna varð að engu, þar sem
línuvörðurinn tilkynnti að leikbrot
hefði átt sér stað rétt áður en mark
var skorað. Mark á þessum tíma
hefði getað breytt gangi leiksins,
og þetta fór í taugar leikmanna
Jeunesse.
Sérstaklega urðu margar opnur
í vörninni, og framherjar mót-
herjanna fengu of mikið rými til
að athafna sig á, þannig var líka
þegar Valur skoraði annað mark-
ið, að tveir Valsmenn stóðu algjör-
lega fríir. Framverðir Jeunesse
léku lakar en venjulega, og vant-
aði þannig alla nauðsynlega aðstoð
við sóknina. Þegar Hnatow skor-
aði, höfðum við fulla ástæðu til að
vona að nú tækist að jafna, og
þúsundirnar af áhorfendabekkjun-
um hvöttu Jeunesse til þess. Nú
sóttu okkar menn af öllum mætti,
en að okkar áliti var sóknin yfir-
drifin, því að aðeins tveir önnuð-
ust vörnina. Um þetta má deila, og
eftir á er auðvelt að finna að.
Afleiðingin af þessu varð sú að
hinum slungna Jónssyni tókst að
skora þriðja markið. Á endasprett-
inum óx Jeunesse ásmegin, og
tókst á allra síðustu mínútunum að
jafna. — Áhorfendur yfirgáfu
völlinn óánægðir.
Nánar um gang leiksins: Þegar
á annari mínútu leiksins hefði það
getað orðið 1:0 Jeunesse í vil, þeg-
ar De Genova sendi fyrir markið
og Dagsson markvörður rann til
og knötturinn straukst við stöng-
ina. Tveim mínútum síðar skaut
Taglíatesta á mark aftur fyrir sig
og varði Dagsson glæsilega. Njáls-
son braut illilega á Taglíatesta,
sem varð að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla. Stuttu síðar lék vinstri
útherji Jónsson (sem vafalaust er
bezti maður liðsins), á vörn Jeun-
esse, og skaut framhjá markverð-
inum, sem enga tilraun gerði til að
verja. Eftir þetta mark Vals
komst vörn Jeunesse út úr öllu
skipulagi, rangar sendingar sáust
hvað eftir annað, og það var auð-
séð að vörn Jeunesse átti slæman
dag. Þannig er það skiljanlegt að
það var ekki fyrr en á 25. mínútu
að Jeunesse tókst að halda uppi
sókn og skora, sem þó var ekki
viðurkennt vegna leikbrots rétt áð-
ur. Mínútu síðar ver Dagsson frá-
bærlega í horn eftir aukaspyrnu.
Eftir að Jónsson og Gíslason höfðu
verið áminntir, skorar Gunnars-
son á 35. mínútu annað mark Vals,
enda óvaldaður.
Heimamenn voru nú hálfniður-
brotnir, og léku til loka hálfleiks-
ins langt undir getu.
Eftir leikhlé var Jeunesse gjör-
breytt lið, og þrátt fyrir það að
þeir voru einum færri, þá réðu þeir
gangi leiksins, einnig náðu þeir
tveim góðum marktækifærum, sem
ekkert varð þó úr. Þessir yfirburð-
ir í sókn enduðu með marki, sem
Hnatow skoraði á 56. mín. leiksins
2:1.
Sóknin hélt áfram og áhorfend-
ur bjuggust við sigri. Vinstri bak-
vörður Vals, Friðþjófsson bjargar
tvisvar á línu. En á 64. mín kom
svo hið kalda steypibað. Gunnars-
son hafði þotið fram vinstra meg-
in, og sending hans til Jónssonar,
sem var óvaldaður, olli honum eng-
um erfiðleikum að skora. I liði
Jeunesse varð vart uppgjafar, þar
sem leikurinn var í rauninni tap-
aður. Þrátt fyrir það mátti engu
muna að bæði Hnatow og Digenova
skoruðu á 68. og 72. mínútu. Þegar
allir höfðu sætt sig við tap Jeun-
esse, og margir áhorfenda yfirgef-
ið völlin, skoraði Digenova á 86.
mínútu. — Langer hafði skotið
þrumuskoti að marki, en Dagsson
gat varið með fætinum, en var