Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 54

Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 54
52 VALSBLAÐIÐ borg’ miðri. Varla verður sagt, að Þórshöfn sé fallegur bær, en hann er ekki óviðkunnanlegur, og ekki er ysinn og hávaðinn. Þórshöfn er hljóðlátur bær og þar virðast fáir þurfa að flýta sér. íbúar bæjarins virðast hafa nægilegt að bíta og brenna, en lítið þar fram yfir. Lit um við svo til, að þeir mundu vera nægjusamir, jafnvel úr hófu fram. Verzlanir hafa gnægð vara á boð stólum, en þær eru dýrar, t. d. mun lítill verðmunur þar og hér á fatn- aði, skóm og lúksusvörum. Fyrsti dagurinn í Þórshöfn var viðburðaríkur að mörgu leyti. Margir dvöldu nú í fyrsta sinn í framandi landi á eigin spýtur og yfirstigu þá erfiðleika, sem því eru samfara. Margir áttu þess kost að skoða bæinn í bílum húsbænd- anna. Dagurinn leið fljótt, enda stuttur, því fararstjórinn bað menn ganga snemma til náða og því framfylgt eins og reyndar öllu, sem fyrir var lagt. Öllum var það ljóst að á þeim hvíldi mikil ábyrgð. Við skyldum koma fram með sæmd fyrir félag vort og þjóð. Næsta dag var fyrsti leikurinn spilaður. Upp úr hádegi var mætt í Hafnía, en það er nýtízku hótel í Þórshöfn. Við höfðum það fyrir venju að mæta þar á hverjum degi á ákveðnum tíma. Færeyingar höfðu séð okkur fyrir stóru her- bergi þar, sem við skyldum nota til fundarhalda. Þar gátum við spilað og teflt. Þetta herbergi varð mjög vinsælt og kom í mjög góðar þarfir og gerði það að verkum, að við urðum enn meira saman. Við ræddum taktikina og nefndin gaf upp liðið, sem keppa átti. Einni klukkustund áður en leikurinn skyldi hefjast var lagt af stað upp á knattspyrnuvöllinn, sem er í út- jaðri bæjarins. Ekki getum við sagt, að hann hafi verið árenni- legur. uppgróinn sumstaðar, en klappirnar stóðu uppúr annars staðar, og kringum hann var Jskurður og rann allstór lækur rétt með annarri hlið vallarins. Þarf ekki að geta þess að boltinn var þar oft á ferð. Áður en leikur- inn hófst, gengu bæði liðin fylktu liði inn á völlinn og stilltu sér upp á miðjunni. Síðan spilaði lúðrasveit þjóðsöng beggja og markvörður B. 36 færði okkur blóm. Síðan hófst leikurinn. Fer hér á eftir lýsing á leiknum og læt ég 14. September, en það er blað í Færeyjum, lýsa honum: „1 góðveðri leikaðu teir í Gunda dali mánakvöldið. Nógv fólk hevði leitað niðan at síggja henda dyst. Eisini hornblástrarliðið GHM var komið niðan til að royna að gera fólki hesa lötu so hugnaliga sum gjörligt var. Dysturinn var hampuliga leikaður, ongantíð ser- liga spenningi. I bóltviðferð eru Is- lendingarnir nógv betri enn För- oyingar. Teir tykjast nógv mjúk- ari í liðunum og eru minni bonskir enn vit Föreyingar, og har aftrat eru teif kvikir. Menn hóast alt hetta royndist B36 óföra væl. Tað sást at teir roundu at halda leikin vakran og reinan og eisini vóru teir langa lötu javnir við íslend- ingar í málum. Eins og Víkingar fjördu mundu Vala menn leggja til merkis at Kris er málverji á högum stigi. Tey tvey fyrstu mál- ini fingu Islendingar, men eisini B36 fekk eitt mál í fyrra hálvleiki, so úrslitið av hesum hálvleika varð 2—1 til Valur. Eingin var bilsin av at Valur leikaði betur enn B36, tí hetta liðið er Reykjavíkurmeistari í ár, heldur vóru vit ernir av at B36 var ment at fáa bóltin á mál hjá Islendingum tvær ferðir. Is- lendingarnir vóru allir javngóðir leikarar, einginn framum kunna vit siga, og hetta sigur so mikið at B36 hevur hevt ein av sínum frægasta dögum. Beinan vegin í seinna hálvleiki gjördi B36 tað bragd, at fáa eitt mál aftrat, so leikur kom at standa á jövnum, men í hesum hálvleiki fingu so Is- lendingar yfirmunin. Hesi bæði málini í seinni hálvleiki vóru av- bera vökur. Fyrru ferð var tað Jimmy hjá B36 sum setti bóltin á mál, og seinnu ferð Islendingurin Gunnar Gunnarsson. Valur vann so statt henda fyrsta dystin við 3 málum móti 2.“ Þess má geta að Sigurhans og Bragi skoruðu sitt markið hvor, en Gunnars er áður getið. Við vor- um í alla staði ánægðir með leik- inn og engu frekar að bæta við frá- sögu blaðsins. Um kvöldið var kaffisamsæti á Hafnía. Það var hin- bezta skemmtun og kynntumst við þar mörgum kappliðsmönnum og velunnurum knattspyrnunnar í Færeyjum. Næsti dagur var frí- dagur, þ. e. a. s., menn voru frjáls- ir ferða sinna, nema hvað þeir urðu að vera komnir í rúmið fyrir klukkan 12 á miðnætti. Held ég að allir hafi staðið við gefið loforð. Mjög mikil leynd hvíldi alltaf yfir því, hverjir skyldu spila næsta leik. Þetta var auðsjáanlega gert til þess að enginn gæti slegið slöku við og hugsað sem svo, að í lagi væri að bregða sér svolítið á kreik. Því verður ekki neitað að afkom- endum Grettis og Egils var veitt athygli, er þeir spókuðu sig á göt- um höfuðborgarinnar. Eg veit ekki nákvæmlega, hve árangurs- rík augnaskotin urðu, en það er náttúrlega saga út af fyrir sig, en margir voru þeir, sem skoðuðu skemmtigarðinn og dáðust af feg- urð trjánna og svananna, sem syntu á vatninu, þó stundum \7æri farið að rökkva, er reisan var gerð. Miðvikudagurinn 27. ágúst er mjög eftirminnilegur. Þá fórum við í ferðalag til Klakksvíkur, en það er bær, sem er svipaður á stærð og Isafjörður. Ferðin tók okkur 3 klst. og þrisvar skift um farartæki. Fyrst var farið á bát, sem TRÖNDUR hét. Síðan var ekið í bíl og svo aftur í bát, sem hét PRIDE. Á endastöð bílferðar- innar komum við til Götu. I Flat- eyjarbók er frásögn um Þránd í Götu, er bjó í Austurey og réði um mest allar eyjarnar. Talið er að Þrándur hafi ekki verið auðsveip- ur konungi um of, og staðið á móti honum. Frá þessu höfum við svo það sem orðatiltæki, að einhver sé Þrándur í Götu einhvers. Á leið- inni til Götu fengum við allgott tækifæri til þess að sjá Færeyska sveit. Hún er talsvert frábrugðin þeirri íslenzku. Undirlendi er mjög lítið og túnin oft mjög brött, svo lítið verður um vélanotkun. Býlin eru lítil og auðsjáanlega ekki gert ráð fyrir því að selja af- urðir sínar. Þó voru húsin flest ný og reisuleg og má ætla að einn eða fleiri stundi sjó frá hverju heim- ili. Vitað er að þeir högnuðust á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.