Valsblaðið - 24.12.1967, Side 57
VALSBLAÐIÐ
55
Lagt upp í Þýzkalandsferðina:
Fremstu tveir eru Sigurhans Hjartarson og Hermann Hermannsson. Þá Baldur
Jónsson og Gísli Sigurbjörnsson fararstjóri, Einar Halldórsson og Gunnar Gunn-
arsson, Sigurður Sigurðsson, Björgvin Hermannsson og Sigurður Ólafsson, Hilm-
ar Magnússon og Björgvin Daníelsson, Þorkell Gíslason, Árni Njálsson, Halldór
Halldórsson, Magnús Bergsteinsson (stendur á tá) og Albert Guðmundsson.
móti okkur fyrir hönd Knatt-
spyrnusambands Neðra-Saxlands.
Steinwax átti eftir að vera mikið
með okkur og var hinn bezti félagi.
Um kvöldið var okkur boðið að sjá
eins konar Tívolí, en það var afar-
stórt skemmtisvæði og lá í grennd
við hið heimsfræga St. Pauli. Bú-
ast má við að margir hafi brugðið
sér þangað, en allir voru frjálsir
ferða sinna þetta kvöld. Næsta
morgun, mánudaginn 27. ágúst,
fórum við og skoðuðum hinn heims-
fræga dýragarð, sem kenndur er
við stofnanda hans, Ilagenbeck.
Þarna var dvalizt fram undir há-
degi, enda fjölmargt að sjá. Á leið-
inni niður á hótel skoðuðum við
einn stærsta íþróttaleikvang alls
Þýzkalands, en hann er í Hamborg.
Þótti okkur mikið til hans koma.
Upp úr hádeginu var okkur svo
boðið í „Rundfahrt" um höfnina í
Hamborg. Þar var að sjá eyðilegg-
ingu stríðsins og einnig margt
glæsilegt handbragð þýzkra skipa-
smiða. Þegar þessu var lokið var
gefið frí og notuðu það flestir til
innkaupa eða „Einkaufen", sem
var orðið öllu tamara. Um kvöldið
hélt svo hin óviðjafnanlega gest-
risni áfram. Þá var flokknum boð-
ið í Hansa Theatre, en það er leik-
hús með dálítið sérstöku sniði.
Hægt er að fá veitingar þar sem
setið er meðan á sýningunni stend-
ur. Kvöld þetta var hið ánægju-
legasta. Að lokinni sýningu fylgd-
ust allir að heim og fór enginn út
eftir það um kvöldið. Árdegis
þriðjudaginn 28. ágúst var lagt af
stað frá Hamborg og var ferðinni
heitið til Barzighausen. Leiðin
þangað er eitthvað á 3ja hundrað
km og afar falleg. Skiptast þar á
akrar og skógar og smáborgir, sem
mjög eru orðnar gamlar og þýzkar
í útliti, en þær hafa sloppið að
mestu við eyðileggingu stríðsins.
Stoppað var á þremur stöðum á
leiðinni, Lúneburg og Celle, sem
eru litlar borgir og mjög snotrar
í útliti og Steinhorst, en það er
þorp, þar sem skóli knattspyrnu-
sambands Hamborgar er. Þar var
dvalizt góða stund og borðað. Gísli
fararstjóri lagði blóm á leiði Lin-
demanns, en hann var forseti
knattspyrnusambands Þýzkalands
um árabil og mikill Islandsvinur.
I þessu þorpi fengum við einnig
tækifæri til að sjá sveitamarkað,
en við hittum einmitt á þann eina
dag ársins, sem hann var haldinn
í Steinhorst. Undir kvöldið var
komið til Barzighausen, en það er
íþróttamenntasetur Knattspyrnu-
sambands Neðra-Saxlands, mjög
glæsilegar byggingar og svæðið
umhverfis þannig að varla getur
það verið meira aðlaðandi. Hér
bjuggum við nær allan tímann,
sem við áttum eftir að dveljast í
Þýzkalandi. Herra Karl Laue, for-
seti Knattspyrnusambands Neðra-
Saxlands, tók hér á móti okkur, en
hann var aðalfararstjóri þýzka
liðsins, sem kom hingað til íslands
1954.
Þá var þarna Úlfar og frú líka
komin. Það væri ærin ástæða að
lýsa nánar húsakynnum og um-
hverfi Barzighausen, en þetta verð-
ur að nægja: Aðalbyggingin er 4
hæðir og 185 m. á lengd. Þetta er
ekki eitt hús heldur mörg og ligg-
ur hvert við annað og er innan-
gengt á milli þeirra allra. Karl
Laue fór með okkur í Rundfahrt
um húsið og tók sú ferð góða stund,
en ekki veitti af mörgum klukku-
stundum til að gera því einhver
skil. Margir stórir salir og setu-
stofur, búnar beztu þægindum, eru
þarna, ásamt eldhúsi einu miklu,
því stundum búa þarna 200—300
manns. Þá er þarna stór kvik-
myndasalur og leikfimissalur mjög
stór. Á svæðinu fyrir framan er
knattspyrnuvöllur og stór sund-
laug, en hæðirnar í kring eru skógi
vaxnar. Næsta morgun var risið í
seinna lagi úr rekkju, enda dálítil
þreyta í mönnum frá deginum áð-
ur. Hádegisverður var fram borinn
í fyrra lagi, því all löng ferð var
fyrir höndum, en keppa skyldi í
Wolfenbúttel við úrval áhuga-
manna frá Neðra-Saxlandi. Eftir
rúml. 2ja tíma akstur var komið
á áfangastað og var strax skipt
um föt og hófst leikurinn þvi næst.
Við töpuðum þessum leik með
10:0. Engan er sérstaklega hægt
að áfella fyrir þetta tap, en leikur-
inn var furðu skemmtilegur. Það
heppnaðist ekkert hjá okkur, en
þeir náðu sér vel upp. Veður var
gott til keppni og sá margt manna
leikinn. Þessir léku fyrir Val:
Björgvin Hermannsson
Árni Magnús
Halldór
Páll Sigurhans