Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 59
VALSBLAÐIÐ
57
Lagt upp í skemmtisiglingu um Hamborg.
Á stjórnborða eru: talið frá v.:.Ægir Ferdinandsson, Sigurhans Hjartarson,
Björgvin Hermannsson, Hörður Felixson, Halldór Halldórsson, Páll Aronsson,
Stefán Hallgrímsson, Björgvin Daníelsson, Hermann Hermannsson og þýzkud
leiðsögumaður. Á bakborða frá v.: Gunnar Gunnarsson, Björgvin Torfason, Þor-
kell Gíslason, Valur Benediktsson, Sigurður Sigurðsson, Árni Njálsson, Magnús
Bergsteinsson, Sigurður Ólafsson, aðalleiðsögumaður flokksins, Gísli Sigurbjörns-
son aðalfararstjóri, Magnús Snæbjörnsson, og Baldur Jónsson vallarstjóri.
þarna undanfarna daga. Síðan var
lagt af stað til Liichow, en það er
smábær rétt við landamæri Vestur
og Austur-Þýzkalands. Leiðin til
Liichow liggur um fögur héruð og
Liineborgarheiði, sem fræg er.
Komið var þangað laust fyrir há-
degi og höfðum þá ekið á fjórða
klukkutíma. Allir helztu menn
bæjarins tóku á móti okkur og fór
þar fram bæði móttaka og kveðju-
ræður fluttar, því ekki átti að eyða
tíma í slíkt um kvöldið og kom það
sér vel. Meðal þeirra, sem tóku á
móti okkur þarna, var Bartram,
en hann hafði komið til fslands
1938 með þýzka knattspyrnuliðinu
og urðu þarna fagnaðarfundir með
honum og Hermanni.
Eftir hádegismat var okkur
ekið að landamærunum og okkur
sýnt yfir til Austur-Þýzkalands.
Leikurinn fór fram síðdegis í
ágætu veðri. Áður en hann hófst
voru þjóðsöngvarnir leiknir og þá
höfðu þeir dregið íslenzka fánann
að hún. Ekki var þessi fáni í rétt-
um hlutföllum og gáfum við Bart-
ram íslenzkan fána, sem við höfð-
um haft með að heiman. Leikurinn
var allgóður, þó var farið að bera
á þreytu hjá okkar mönnum. Þrátt
fyrir það unnum við leikinn með
5:3 og skoruðu þeir í framlínunni
sitt markið hver. Liðið, sem lék,
var þetta:
Björgvin H.
Árni Magnús
Halldór
Páll Sigurhans (Stefán)
Gunnar Hilmar Björgvin
Ægir Sigurður
Sigurhans meiddist í leiknum,
þó ekki alvarlega. Eftir kvöld-
verðinn afhenti Gísli þeim í Lii-
chow mynd af Gullfossi, en við
fengum félagsfána þeirra og
merki. Þess ber að geta, að Gísli
afhenti leikmönnum alltaf eftir
leik merki félags okkar og fyrir-
mönnum sambandanna silfurmerk-
ið. Um kvöldið var okkur haldin
mikil skemmtun og var mjög til
hennar vandað. T. d. höfðu þeir
fengið danshljómsveit Norður-
þýzka útvarpsins ásamt fjórum
einsöngvurum til að syngja og leika
fyrir dansinum, sem stóð þar til
síðla nætur. Kl. 6 næsta morgun
voru allir samt komnir á fætur og
út í bíl, því við áttum eftir langa
ferð fyrir höndum. Við kvöddum
nú Gísla, hinn ágæta fararstjóra
okkar, og Wickmann, sem hafði
reynzt okkur sérstakur ferðafé-
lagi. Síðan var lagt af stað áleiðis
til Dusseldorf, en þangað var 8
tíma keyrsla. Ferðin þangað gekk
mjög að óskum, einu sinni var áð
til að matast. Þegar við komum
til Dusseldorf, klukkan að ganga
þrj ú, fréttum við, að flugvélin biði
eftir okkur, svo ekki var til set-
unnar boðið. Við kvöddum nú Ulf-
ar og frú, en þau ætluðu að halda
áfram suður að Miðjarðarhafi, og
einnig bílstjórann Wassmann, einn
heljar jaka og keyrslufant, sem
hafði ekið okkur allan tímann.
Eiga allir góðar endurminningar
frá þessum karli. Nóg um það. Um
þrjú leytið var flugvélin komin á
loft og flaug eftir skamma stund
yfir Rín og þar með var dvölinni í
Þýzkalandi lokið.
Eftir tveggja stunda flug frá
Dússeldorf var lent á flugvellinum
við London. Greiðlega gekk að
komast í gegnum tollinn og vega-
bréfaskoðunina. Við áttum von á
því að bíll biði okkar fyrir utan
flugstöðina, en ekki gátum við
komið auga á hann. Tilgáta
okkar var líka rétt, en bíl-
stjórinn hafði bara brugðið sér
frá til að fá sér tesopa. Þetta
fór síðan allt samkvæmt áætl-
un og var komið á Lancaster-
court hótel um kl. 7,30 e. h., en þar
sváfum við þessar tvær nætur með-
an við dvöldum í London. Þorkell
Ingvarsson var mættur og urðu
miklir fagnaðarfundir. Þorkell var
okkar aðalfararstjóri það sem eft-
ir var ferðarinnar. Kvöldið notuðu
allir til að sjá sig um í borginni.
Næsta dag höfðu menn frí og gerðu
þeir innkaup, sem áttu eitthvað
eftir af peningum. Halldór Hall-
dórsson yfirgaf okkur og flaug
heim. Um kvöldið var okkur boðið
að sjá leik milli Arsenal og Preston
North End. Leikurinn fór fram á
Highbury og var margt um áhorf-
endur, ca. 60 þús. Mjög þótti okk-
ur gaman að sjá þessar kempur
eigast við, en í liði hvors voru
margir mjög þekktir knattspyrnu-
menn eins og t. d. Tom Finney úr
Preston og Holton frá Arsenal.
Preston vann 2:1. Um kvöldið var
frí. Næsta dag kl. 2 e. h. var lagt
af stað áleiðis til Bishop Auch-