Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 62
60
VALSBLAÐIÐ
HVER ER VALSMAÐURINN ?
Ég get ímyndað mér að ýmsir
meðal yngri félaga Vals reki upp
stór augu, er ofangreind spurning
er borin fram með þeirri mynd er
henni fylgir. — Hinsvegar mun
hvorki spurningin eða svarið koma
hinum eldri félögum vorum á ó-
vart. Vissulega er Hafsteinn Guð-
mundsson ekki ókunnur meðal
yngri Valsmanna að heldur, en þó
fyrst og fremst sem forystumaður
harðsnúinna mótherja og þá ekki
sízt Valsmanna. Já, vissulega hafa
Valsmenn átt í harðri og tvísýnni
baráttu um æðstu metorð ísl.
knattspyrnu við liðsmenn Haf-
steins. Má í því sambandi minna
á úrslitaleikina tvo í næst síðasta
Islandsmóti. Það er því í sjálfu sér
engin furða þó ýmsa unga Vals-
menn, sem ekki eru því betur að
sér í sögu Vals á liðnum árum,
reki í rogastanz, er mynd af harð-
soðnum höfuðsmanni stæltra and-
stæðinga birtist í Valsblaðinu, und-
ir fyrirsögninni: Hver er Vals-
maðurinn? Og hann er leiddur til
sætis innst í kór hinna beztu sona
Vals, þeirra, sem m.a. hafa gert
garðinn hvað frægastan. En þegar
flett er í blöðum sögu liðinna ára
og rýnt er í gang mála í félags-
starfi Vals, utan vallar sem innan,
kemur í ljós, að um árabil var Haf-
steinn Guðmundsson þar í fremst-
um fylkingararmi, ætíð reiðubú-
inn, stórhuga og stæltur, unnandi
sér engrar hvíldar, hvorki í sókn
né vörn.
Hafsteinn Guðmundsson er fædd-
ur í Reykjavík 1. okt. 1923, for-
eldrar hans voru Guðmundur Sig-
mundsson og kona hans Vigdís Öl-
afsdóttir.
Aðeins 8 ára gamall gerðist hann
félagi Vals og er það enn auðvit-
að; því einu sinni Valsmaður, allt-
af Valsmaður. Allt til ársins 1954
starfaði Hafsteinn í Val og fyrir
Val. Hugur hans og meginstarf
framan af árum var fyrst og
fremst bundinn við hina heillandi
knattspyrnuíþrótt, allt frá því að
hann kom í félagið kornungur
drengur. Hann sýndi þegar mikinn
dugnað við æfingar og komst því
fljótt í kapplið. Byrjaði í V. fl. og
fluttist síðan jafnt og þétt flokk úr
flokki, eftir því sem aldurinn færð-
ist yfir hann og hafnaði loks í
meistaraflokki árið 1942, lék hann
síðan óslitið þar allt til ársins
1954, eða alls 121 leik og átti sinn
drjúga þátt í að færa Val Islands-
meistaratitilinn á þessu tímabili.
Auk þess var Hafsteinn oftar en
einusinni valinn í úrvalslið og
landslið. Hafsteinn var hörkudug-
legur leikmaður, baráttuglaður og
vígdjarfur.
Auk knattspyrnunnar sýndi
hann, er fram liðu stundir, mikinn
áhuga fyrir handknattleiknum, sem
var að ryðja sér til rúms. Hann
lék og keppti þar fyrir Val, og var
með í að færa félaginu mikla og
góða sigra á þeim vettvangi, bæði
Islandsmeistara- og Reykjavíkur-
tign. En alls lék Hafsteinn 91 leik
fyrir Val í meistaraflokki. Auk
þess sem Hafsteinn Guðmundsson
æfði og keppti, lét hann brátt, er
stundir liðu, félagsmálin almennt
til sín taka. Sýndi það sig líka
fljótt að hann var ekki síður lið-
tækur á því sviði en við æfingar
og keppni. Harðsnúinn og ýtinn
málafylgjumaður. En jafnan ein-
lægur og hjartaheitur.
Um skeið átti hann sæti í stjórn
félagsins og ýmsum mikilsverðum
nefndum, og sem fulltrúi þess var
hann um árabil í Handknattleiks-
ráði Reykjavíkur og formaður
þess, einnig síðar var hann kjör-
inn í stjórn H.S.I og varamaður í
stjórn K.S.I. og meðlimur lands-
liðsnefndar. Af þessu sem nú hefir
verið nefnt, leikur ekki á tveim
tungum, að Hafsteinn Guðmunds-
son hefir vakið og nýtur mikils fé-
lagslegs trúnaðar innan íþrótta-
hreyfingarinnar, enda er maður-
inn hinn traustasti að allri gerð.
En þrátt fyrir mikið og gott
starf á liðnum árum, innan Vals
í sameiginlegum fulltrúaráðum og
samböndum, hefir þó meginstarf
Hafsteinn Guðmundsson.
hans verið utan Reykjavíkur, í
Keflavík aðallega. Þar var sá ak-
ur sem hann erjaði og sá akur bar
vissulega margfaldan ávöxt, er
öruggar sáðmannshendur höfðu
þeim um vélt.
Iþróttabandalag Keflavíkur var
stofnað 1956, og allt frá stofndegi
hefir Hafsteinn veitt því forystu
og átt meginþáttinn að mótum
þess. Með stofnun IBK var íþrótta-
starfinu í Keflavík og Suðurnesj-
um í heild sköpuð sú forysta og
kjölfesta sem dugði. Vöxtur og
viðgangur knattspyrnunnar þar
um slóðir sannar það. En lið IBK
hefir undanfarin ár verið eitt
sterkasta I.-deildar lið okkar, og
m.a. verið íslandsmeistaralið.
Eins og fyrr segir skyldu leiðir
Hafsteins og Vals árið 1954, er
hann fluttist „úr bænum" og „suð-
ur með sjó.“
Vissulega var hans saknað, en
jafnframt þakkað og glaðzt var yf-
ir dugnaði hans og gagnmerkri
forystu á íþróttasviðinu á nýjum
slóðum.
I öðrum stað hér í blaðinu er
frásögn af sögulegum úrslitaleik í
Islandsmótinu milli Vals og Akur-
nesinga. Þar sést Hafsteinn skora
fyrsta mark leiksins, eitt af mörg-
um, sem hann á áraraða knatt-
spyrnuferli sínum skoraði fyrir
Val.
Er Valur sigraði í Islandsmót-
inu árið 1966 eftir harða og endur-
tekna tvísýna baráttu við IBK, og
með umdeildu marki, lét Hafsteinn
í ljósi nokkur vonbrigði, sérstak-
lega með dómarann, en lét þess
einnig getið, að úr því sem komið
væri, væri það vissulega huggun