Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 66
64
VALSBLAÐIÐ
SÖGULEGUR ÚRSLITALEIKUR
Hafsteinn Guðmundsson skorar fyrir Yal.
um ákaft og virðist manni sem
Skagamenn eigi þar sterkari ítök-
in.
Dómarinn, Guðjón Einarsson,
kemur nú inn á völlinn ásamt að-
stoðarmönnum sínum. Hann kall-
ar nú fyrirliðana til sín, þeir heils-
ast og Valsmenn vinna hlutkestið
og kjósa að leika á nyrðra markið,
undan vindinum. Dómarinn gefur
merki og leikurinn er hafinn.
I fyrstu er auðséð að liðin ótt-
ast hvort annað. Valsmenn eru
meira í sókn framan af, en leikur
liðsins er ekki nógu ákveðinn til
Ég ætla að biðja ykkur, lesend-
ur góðir, að hverfa með mér nokk-
ur ár aftur í tímann — eða til
sunnudagsins 6. september árið
1953. Ætlunin er að skreppa á
Melavöllinn í Reykjavík. Veðrið er
ekki sem bezt, sex vindstig og rign-
ingadembur, sem nálgast að vera
skýfall.
Leikurinn sem við ætlum að sjá
er úrslitaleikur fslandsmótsins og
það eru Akurnesingar og Valur
sem leika.
Við látum veðrið engin áhrif
hafa á okkur, því almennt er búizt
við skemmtilegum leik, heldur fá-
um okkur sæti í stúkunni og bíðum
þess að kapparnir birtist á vellin-
um. Ekki höfum við lengi beðið,
þegar Valsmenn koma inn á völl-
inn, klæddir rauðum peysum og
hvítum buxum, með fyrirliðann í
fararbroddi.
Skömmu síðar birtast Skaga-
menn, gul og svartklæddir að
vanda. Liði þessu stýrir Ríkharð-
ur Jónsson. Þeir hlaupa að miðju
vallar, raða sér upp og heilsa á-
horfendum. Þeir fagna leikmönn-
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
$
Helgi Danielsson, hinn ágæti markvörður Vals á sínum tíma, rifjaði svo-
lítið upp sögulegan úrslitaleik, sem fram fór á Melavellinum um haustið
1953, en frásögn hans birtist í Alþýðublaðinu í apríl s.l.
Þar sem margir hinna yngri hafa vafalaust lítið eða ekkert heyrt frá leik
þessum, og eins hitt að margir sem muna atvik munu hafa gaman að rifja
þetta upp aftur, leyfum við okkur að birta frásögn Helga hér í blaðinu.
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
Þarna hafði knötturinn verið tekinn úr markinu, en hvernig komst
hann þangað? Halldór Halldórsson bendir á gat á neti marksins.
Helgi Dan baðar út höndum og fullyrðir, að knötturinn hafi ekki
farið „löglega“ leið í markið. Jón Þórarinsson flýtti sér að skoða
vegsummerki.