Valsblaðið - 24.12.1967, Qupperneq 68
66
VALSBLAÐIÐ
Myndin hér að ofan er tekin í Kaupmannahöfn, eftir Landsleik íslands og Danmerk-
ur í Knattspyrnu í Idrætsparken hinn 23. ágúst s.l. sumar.
Aðalmennirnir á myndinni eru, markateljarinn „á vellinum“ og Guðmundur Péturs-
son, markvörður Islands. Munu þeir sennilega vera að bera saman bækur sínar um
úrslitin og Daninn sjálfsagt að fá „staðfestingu“ á því hjá Islendingnum, að rétt
séu framtöld mörkin, enda ætti hann þar gerzt um að vita.
(ÚR ÍÞRÓTTAFRÉTTUM)
Idrettsparkens æfintýr
ugg og hrylling vakti
— Dulrænt afl með dönskum býr,
sem dáð úr löndum hrakti.
Ekki skorti okkur þó
í útförina — stjóra,
því úrvalsliðið út sig bjó
með í það minnsta — fjóra!!
Það voru líka þjálfarar
í þessum hópi manna,
— fréttamenn og fóru þar
og formenn samtakanna!!
Líka var þar landsliðsnefnd,
sem ljómaði öll í framan,
sæl og glöð — og samanstefnd.
— Já, — svona er stundum gaman!
Að flestra dómi valið var
vel — í stöður allar,
því enginn neitt af öðrum bar
á okkar helming — vallar.
Já, — nú var okkar úrvalslið
alveg sér í flokki,
— en eflaust verður á því bið,
að utanfarir — lokki!!
Því aldrei hefur hagað fyr
svo herfilega — vindi,
að aldrei kæmi í bakið byr
svo Bauninn til þess fyndi!!
í HÁLFLEIK
(Bæn)
Ó, — þú gamli Idrettspark
með ógn af dönskum mörkum,
gefðu olckar mönnum mark
— og meira af straffíspörkum!
AÐ LEIKSLOKUM
(Ekki bæn.)
Fyrirsögnin Fjórtán, — tvö
fræg um aldir verður.
— Nítjánhundruð sextíu og sjö
var „samningurinn“ gerður!!
Guöm. Valur Sigurösson.