Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1899, Side 58
30
voru gölílaus, því boröviö vantaði; sumir töku
sívala trjáboli og liöfðu í gölf, f staö borðviðar.
Eins urðu margir að taka raft úr skóginum og
bwa til pall úr, í staðinn fyrir rúmstæði. Pallur
þessi var optast við annan gafl hússins. í þess
um lítt snyrtilegu rúmstæðum hvílclu menn
fyrsta ár sitt í Nýja Islandi, og sumir jafnvel
lengur, eða þangað til menn fóru sjálfir að saga
með tviskeptum og eignast borðvið, enda tók
þá húsabyggingin fljótum stakkaskiptum. Vet-
urinn andaði kaldan að hinum fyrstu landnáms-
mönnum Nýja Islands; hann var bæði harður
og langur. Winnipeg-vatn lagði skömmu eptir
að höpurinn teig á land, eða rjett eptir vetur-
nætur. og h' isinn þangað til 24. maí. Að eins
þetta fyrsta haust lagði Winnipeg vatn fyrir
lok oktöbermánaðar, en síðan hefur það aldrei
gert siíka óvenju,að leggja svo snemma,—leggur
vanalega ejitir miðjan növemberm. TJpphaflega
var svo tilætlað, að þessi fyrsti hópur Islend-
inga færi alla leið noröur að Islendingafljóti og
settist þar að, en af því svo var áliðið haustið,
þá var mönnum nauðugur einn kostur að láta
þar fyrirberast, sem þá bar að landi.
Meðal þeirra, sem voru i fyrstahóp þeim, er
kom til Nýja Islands, voru þeir, sem nú skal
greina: Friðjón Friðriksson, frá Harðbak á Mel-
rakkasljottu i Þingeyjarsýslu (hans er áður get-
ið); Arni Friðriksson u Winnipeg, bröðir Frið-
jóns); Olafur Olafsson, frá Espiliöli í Eyjafirði;
Jakob Jönsson, frá Munkaþvorá í Eyjafirði;
Jön .Tönsson (bröðir Jakobs); Jóliannes Magnús-
son, frá Stvkkishölmi; Guðlaugur Magnússon,
frá Hafursstöðum á Fellsströnd í Dalasýslu;
Skapti Arason, fi'á Hringveri í Þingeyjarsýslu
(einn þeirra, sem skoðaði fyrst Nýja ísland);