Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1908, Page 59
ALMANAK 1908.
35
sínum ofj erindum og þeir sjá enga ástæöu til aö hefta för
lians, þar sem vörðurinn sé hafinn. Hann heldur því
leiðar sintiar, þangað til hann kemur upp að Nettle Creek.
Þar veröur hann engra var nema tveggja Indiána kerlinga,
sem voru þar með báta sína. En þegar þær verða þess
áskynja, að þarna sé íslendingur kominn úr nýlendunni,
verða þær dauðhræddar við veikina og leggja bátum sín-
um' út á miðjan lækinn, en þverneita að ferja Friðjón yfir.
Kallar hann þá til þeirra all-myndugur í máli, og segir
þeim, að ferji þær sig ekki yfir lækinn, þegar í stað, geti
svo farið, að allir nýlendumenn komi í herskáum huga og
muni Indíánar þá falla bæði fyrir vopnum þeirra og veik-
inni. Skipar hann þeim í nafni h i n n a r m i k 1 u
m ó ð u r — drotningarinnar — að ferja sig tafarlaust
j'fir. Skaut þeim þá skelk allmiklum í bringu og reru
með hann á báti sínum eigi að eins yfir lækinn, heldur
langan spöl upp eftiránni.
Eftir þetta gekk erindið greiölega. Friðjón keypti
ein 300 busliel af jarðeplum til útsæöis handa nýlendubú-
um og heilmikið af garðfræi. Flatbát keypti hann í
Winnipeg til að fiytja þetta og réð til hans nokkura kyn-
blendinga. Láta þeir berast fyrir straumi niður ána og
gengur vel. Koma þeir í dagrenning þangað, er vörður-
inn var við ána. Lét Friðjón kynblendingana skjóta sér í
land, en sagði þeim að halda leiðar sinnar. Hálfdimt var
og mýbit fjarskalegt. Sátu tveir varðmenn við eld til að
fæla flugurnar frá sér með reyknum. Þeir kröfðu Friðjón
sagna. Sagðist hann vera að fara ofan til Gimli með út-
sæði og aðrar nauðsynjar og koma frá Winnipeg. Eng-
inn getur bannað honum að fara ofan eftir, hugsuðu þeir;
hann á mest í hættunni sjálfur. Svo hann fær fararleyfi,
því þeir hugsuðn ekki út í, hvernig hann hefði komist út
fyrir vöröinn.