Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1908, Side 66
42
ÓLAFUR S. THORGEIRSSOX:
Sá finnst ekki vor á meSal, karl eða kona, sem hefði
ekki gott af einnar stundar viðtali við þessa konu, þó af
almúgafólki sé. Hún heitir María Sehuylart, bóndakona
frá Flandern. Hún hefir lifað vel sínu lífi og unnið þarft
verk um dagana; hún hefir verið árvökur og séð fullri
sjón með sínum eigin augum það sem gerzt hefir i kring-
um hana. Og nú þegar hallar að ellinni, heiir hún öðlast
þá glöðu hugarrósemi, sem er svo fágæt meðal fólks í
Ameríku, og stafar frá þeirri meðvitund að hafa aflckið
farsællega því verki, sem upp var tekið á ungdóms-
árunum.
Sagan af æfistarfi þessarar konu er í tvennu tilliti
merkileg. Æfisaga hverrar manneskju, sem hafir barizt
eins og hetja og lagt sjálfa sig í sölurnar, er öðrum upp-
hvatning til eftirbreytni; hver sem setur sér vísvitandi
göfugt markmið og leggur sig allan fram til að ná því,
gefur öðrum fagurt eftirdæmi.
En þó að María Schuylart sé merkileg manneskja,
góð móðir, góð húsfreyja og nytsamur borgari þjóðfélags-
ins, og því mikils virði fyrir landið, þá er saga hennar
þýðingarmikil einnig að öðru leyti. Hún er ímynd þeirrar
Ameríku sem er að skapast. Elcki svo að skilja að
hávaðinn af því fóiki sem flyzt til þessa lands sé henni
líkur — hver mundi ekki óska að svo væri! -— heldur er
hún fyrirmynd þess bóndafólks, sem leitar hingað frá
Norðurálfunni til að bæta kjörsíní þessu fyrirheitna landi.
Æfisaga hennar sýnir eins og í skuggsjá upptökin að því,
að fólkið streymir hingað, æfikjör þess hér og einbeitta
baráttu til sigurs: — í stuttu rnáli hvernig Ameríku-borg-
arar verða til. En, sem sagt, þá á Maria Schuylart fáa
sína líka, hún er fyrirmynd, afbragð þess fólks í öllum
greinum.
Hún er fædd í Austurflandern í Belgíu; þar bjuggu