Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1908, Side 75
ALMANAK 1908.
5'
heimilisþarfa um mörg-ár. Louis er hættur aö þræla og
seztur í helgan stein með Maríu. Hennar erviði er og
lokið. Hún hefir nú ekki an.iað að gera en leiðbeina og
stjórna.
Eg kom til hennar ekki alls fyrir löngu og þá sagði
hún mér æfisögu sína á þá leið sem eghef sagt frá henni
hér. Við sátum úti fyrir húsdyrunum hjá henni og töluð-
um lengi saman. Hún talaði bjagaða enskuna og and-
litið skifti svipum snögglega eftir umtalsefninu, á meðan
hún sagði mér af því hvernig hún fór að komast í efnin.
En það undraði mig mest, að þessi útlenda kona skyldi
vita hvað hún ætlaði sér alla tíð frá því fyrsta, og fylgja
því vísvitandi og einbeittlega á hverjum degi, og geta nú
litið yfir það sem hún hafði afrekað um dagana með full-
kominni ánægju. Hún talaði meö aðdáun um bónda sinn,
einkum þegar hún minntist á drykkfeldni verkamanna, og
það gerði hún opt. Engum er ljósara en henni, hvílík
bölvun vínið er fyrir verkamenn.
,,Louis var alltaf góður eiginmaður,“ mælti hún.
,,Hann kom með kaupið sitt í hver vikulok, eins og það
var, og fekk mér, og eg lagði það í bankann. Hann lét
sér nægja ef eg fekk honum fimm cent eða stundum tíu,
og sagði honum að fara og fá sér öl fyrir það, og þó kom
það ekki oft að. Það var ólíkt hinum bændunum hérna í
kring. Einu sinni leigði maður lijá mér efra loptið í fram-
húsinu; honum varð eg að segja upp, af því hann gat
ekki borgað húsaleiguna, og þó hafði hann 20 dollars um
vikuna. Mér þótti leiðinlegt að reka hann burt, af því
hann átti svo væna konu, en eg þurfti skildinganna með,
og leið þau eins lengi og eg gat. Þó ótrúlegt sé, þá gat
hann sjaldan fært henni meir en 50 cent af vikukaupinu
— einu sinni aðeins tíu — hitt fór fyrir vín. Eg sé alla
hótelhaldara verða ríka hérna í kring, og eg segi við