Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Síða 7
Páskatímabilið
Kirkjuþingið í Niecea, er haldið var árið 325
eftir Krists fæðing, ákvað og leiddi í lög kirkjunnar,
að páska hátíðin skyldi ætíð haldin vera hinn fyrsta
sunnudag eftir fyrsta tungl, er springi út næst eftir
20.marzmán. Samkvæmt ákvæði þess getur páska-
hátíðin átt sér stað á 35 daga tímabili, nefnilega á
tímabilinu frá 22. marz til 25. apríl, að þeim dögum
báðum meðtöldum. Þetta tímabil er nefnt páska-
tímabilið. Af þessu leiðir, að ef tungl væri fult 21.
marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði sá
dagur (22.) páskadagur. Fyr á ári geta páskar
aldrei orðið. Þetta átti sér stað árið 1818. En sé
tungl fult 18. apríl og 18. apríl bæri upp á sunnudag,
yrði næsti sunnudagur páskadagur, nefnil. 25. apríl.
Það kom fyrir síðast árið 1886.
Sóltími
Sólarhringur er sú tímalengd, er líður á milli
þess, er sólin gengur yfir ákveðna hádegislínu, og er
það hin eðlilegasta skifting tímans. En sökum him
ar mismunandi hreyfingar jarðarinnar umhverfis
sólina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Eclip-
tic), er aldrei nákvæmlega jafnlangur tími milli þess,
er sól gengur yfir ákveðna línu. Af því leiðir, að
það er lítt mögulegt að setja stundaklukku eftir sól.
Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn svo að
önnur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða
þvert yfir miðjarðarlínuna. Er sú ímyndaða sól þá
stundum á undan og stundum á eftir hinni einu
virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínútur.
Réttur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól, en
hinn svokallaði “meðal sóltími” aftur á móti, er mið-
aður við hina ímynduðu sól. Til skýringar má geta
þess að það er aðeins á tveimur dögum á árinu—á
jafndægrum haust og vor—að “meðal sóltími” og
réttum sóltíma ber saman, því á þeim tveim dögum
aðeins er buglínan eða sólargangslínan yfir miðjarð-
arlínunni.