Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Blaðsíða 35
ALMANAK 1942
33
Jóhanna er 8 barna móðir. Eitt misti hún í
Winnipeg, þá nýkomin að heiman. Þau, sem lifa
eru: Sigurjón — hann varð eftir heima — þá 12
ára gamall — hjá föðurbróður sínum; Elísabet,
kona Sigurðar Björnsson — Johnson — að Mozart,
Saskatchewan; Brynjólfur og Ingvar, báðir kvænt-
ir hérlendum konum, til heimilis í Seattle, Wash-
ington; Ágústa, kona Theódórs Laxdal í Mozart;
Rósa og Guðmundur bæði hjá móður sinni, öll
myndarleg og vel' gefin.
Jóhanna er og vel gefin kona í öllum skilningi.
Verkmaður með afbrigðum og náttúrugreind. Saga
bennar er all-einkennileg, og ber þó litið á. að svo
sé, þegar maður í fljótum hasti fer yfir þetta stutta
ágrip, vegna þess, að það er einungis beinagrind
frásagnar um langa og samfelda baráttu, sem
auðvitað fleiri konur eiga með henni, að ýmsu
leyti, nema hvað hún heyr baráttu sína lengst af
ein. Hún kemur ekkja að heiman, félítil eða fé-
laus með 4 börn á unga aldri, og heilsulítil. Heils-
una fær hún þó, enda þarf hún hennar með, ef hún
á að bjarga hópnum sínum. En það þarf meira en
vinnukraft einnar konu, ekki sízt í þá daga, er
kaupgjald var hvarvetna lágt, til að annast slikan
hóp. Þessvegna fer hún vestur að hafi og gerist
ráðskona hjá manni, þar sem hún getur haft börn-
in hjá sér. En það stendur ekki lengi — þrjú ár —
og hún fer enn að spila upp á eigin spýtur, og hefir
þá meiri ómegð fyrir að sjá. Systir hennar, Vigdís
Johnson, tekur að sér eitt barnið, Rósu, og annað-
ist hana um nokkur ár. Ærið var samt, og
hvernig Jóhanna bjargaðist, var næstum óskilj-
anlegt. Sérstaklega þann tíma, sem hún var í
Blaine. Svo tekur hún það ráð að fara austur og
gerist þar landnámskona. Hún situr á landinu
ein með börnum sínum, og vinnur sjálf út; er
matreiðslukona í þreskingu á haustin og vann þá