Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Blaðsíða 94
92 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
járnbrautum (Brotherhood of Maintenance of Way
Employees).
9. Sigurður Sölvason, fyrrum póstmeistari í Westbourne,
Manitoba, á sjúkrahúsi í Winnipeg. Fœddur 7. sept.
1862 að Syðri Löngumýri í Húnavatnssýslu. Foreldr-
ar: Sölvi Sölvason og Solveig Stefánsdóttir. Fluttist
vestur um haf 1883.
11. Öldungurinn Bæring Hallgrímsson, að heimili sínu í
Argyle-bygð i Manitoba. Fæddur að Vík í Flateyjar-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu 8. april 1853. Foreldrar:
Hallgrimur Hallgrímsson og Sesselja Þorsteinsdóttir.
Kom til Ameriku 1874, var framan af árum í Ontario
og Winnipeg, en flutti til Argyle 1888 og gerðist land-
nemi þar í bygð 1890.
15. Sigríður Benediktsdóttir, ekkja Björns Björnssonar frá
Haga i Aðaldal, að heimili sínu í Baldur, Man. Fædd
að Grund í Höfðahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu 3. febr.
1852, en ólst upp í Yztuvik á Svalbarðsströnd. For-
eldrar: Benedikt Benediktsson og Ingibjörg Gunnars-
dóttir. Fluttist vestur um haf með manni sínum (d.
1919) árið 1889 og námu land i Argyle.
19. Guðbjörg Guðmundsdóttir Johnson, ekkja Jóns John-
son, fyrrum rikisþingmanns í Norður Dakota, að
heimili sínu í grend við Garðar, N. Dak. Fædd 8. des.
1866 að Smiðsgerði í Kolbeinsdal í Skagafjarðarsýslu.
Foreldrar: Guðmundur Pétursson og Þorbjörg Finn-
bogadóttir, bæði skagfirzk að ætt. Kom til Ameríku
með foreldrum sínum í stóra hópnum 1876, sem flutti
til Nýja íslands það ár. Þeir Jón Jónsson (Johnson)
og Stephan G. Stephansson skáld voru systkinasynir.
22. Lína Gíslason, að heimili systur sinnar, Mrs. Rooney
Swanson, í Bláine, Washington, 41 árs að aldri.
MARZ 1941
6. Thórarinn Thórarinson, að heimili sínu við Climax
pósthús í Saskatchewan. Fæddur 15. maí 1882 á
Langavatni í Suður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Jón
Þórarinsson, bóndi á Langavatni, af Halldórsstaðaætt
í Laxárdal, og Þuriður Sveinsdóttir, bónda á Garði í
Aðalreykjadal. Fluttist með móður sinni vestur um
haf 1891.
7. Doróthea FriðrikkaJóelsdóttir, að heimili sínu í Win-
nipeg. Fædd á Auðnum í Ólafsfirði 4. ágúst 1874.
Foreldrar: Jóel Jónasson og Þóranna Gunnlaugsdóttir.