Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Qupperneq 42
40 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON:
Hjörtur og Elín Hjaltalín. Hjón þessi komu
til Bellingíham árið 1913, frá Mountain, N. Dak.
Foreldrar Hjartar voru Trausti Ingimundarson og
Guðbjörg Þorsteinsdóttir frá Mýrarlóni. Hjörtur
er hálfbróðir þeirra Aðalsteins rithöfundar og
Friðriks byggingarmeistara í Winnipeg, Kristjáns-
sona. Elín Guðrún, kona Hjartar, er f. 13. júlí
1871 á Hraunum í Unadal í Skagafjarðarsýslu.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður bóndi Run-
ólfsson og Kristín Jónatansdóttir Jónssonar prests
Þorlákssonar á Bægisá. Þau hjón bjuggu síðast
að Mýrarkoti á Höfðaströnd. Þaðan druknaði
Sigurður af hákarlaskipi, þegar Elín var rúmra
þriggja ára. Var Elín næstu tvö ár með móður
sinni, en fór þá til föðursystra sinna Elinborgar
og Guðrúnar að Litlu-Brekku í Möðruvallasókn í
Hörgárdal, Eyjafjarðarsýslu. Vestur um haf fór
hún árið 1891 og staðnæmdist að Mountain, N.
Dak.; þar giftust þau Hjörtur skömmu síðar og
bjuggu þar rausnar búi, þangað til þau fóru
vestur að hafi til Bellingham. Eftir nokkra dvöl
þar, fór Hjörtur austur aftur, en Elín hefir verið í
Bellingham síðan með börnum sínum.
Þeir hjónum varð sjö barna auðið. Þau eru:
Sigrún Marín, Guðrún Elinbjörg, Sigurður, Ingi-
mundur Elbert, öll gift, Theódór, dáinn; Emily,
gift, og Kristín Helen, sem enn er með móður
sinni og vinnur á ráðhúsi borgarinnar. Öll eru
börnin sérlega vel gefin. Svo eru og foreldrar
þeirra. Ef til vill, á Elín ekki marga sína líka að
gáfum.
Pétur og Björg Jónsdóttir Gíslason. Hjón
þessi komu til Blaine vorið 1914. Dvöldu þar sex
mánuði og fluttu þá til Bellingham; komu sér þar
upp ágætu heimili og bjuggu þar unz Pétur dó.
Þau hjón áttu fimm sonu, alla efnilega menn.
Pétur var vel gefinn, góður félagsmaður og lét