Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Side 43
ALMANAK 1942
41
allmikið til sín taka. Bæði voru þau vel liðin og
góð heim að sækja. Til frekari skýringar sjá
Almanak Ó. S. Th. 1913.
Þorgeir Jónsson er fæddur 18. marz 1876 á
Snæfjallaströnd í Isafjarðarsýslu. Foreldrar hans,
sem allan sinn aldur bjuggu á ofannefndum bæ,
voru hjónin Jón Kolbeinsson Jakobssonar og
Matthildur Guðmundsdóttir. Þorgeir ólst upp á
Sandeyri í sömu sveit, fluttist til Reykjavíkur
þegar hann var 22 ára, og þaðan til Ameriku 1901.
Var hálft ár í Winnipeg, kvæntist þar í apríl 1903
fyrri konu sinni, Rannveigu Jóhannesardóttur,
ættaðri úr Árnessýslu. Frá Winnipeg fóru þau
hjón samdægurs vestur á strönd, til Bellingham,
Washington. Voru þar til næsta vors, og fluttu
þá til Calgary, Alberta. Þar misti Þorgeir konu
sína af barnsförum 18. desember s. ár.
Árið 1905 fór hann aftur til Bellingham og
hefir verið þar síðan, að undansklidum tveim
fyrstu árunum þar vestra. Árið 1908 kvæntist
hann seinni konu sinni, Helgu Sigurðardóttir Sig-
urðssonar frá Háhóli í Álftaneshrepp, Borgarfjarð-
arsýslu. Þeim hjónum hefir orðið 4 barna auðið;
eiga þrjár stúlkur og einn son. Stúlkurnar eru:
Evalín, gift dönskum manni, til heimilis í Bell-
ingham; Lilja og Sigurlín, báðar heima. Sonur-
inn hét Kristján George, dó 7 ára gamall. Allar
stúlkurnar luku námi á miðskóla, allar vel gefnar,
Þorgeir hefir starfað að ýmsu í þessu landi, s. s.
fiskiveiðum, siglingum, einnig unnið á tjaldaverk-
stæði og sögunarmyllum. Hann er bezti drengur
og vel gefinn.
Helga Sigurðardóttir, seinni kona Þorgeirs,
er f. 28. sept. 1879. Móðir hennar, Lilja Þorbjarn-
ardóttir, var ættuð úr Norðurárdal. Helga var hjá
foreldrum sínum þangað til hún fór vestur um