Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Page 45
ALMANAK 1942
43
björnsdóttur, þá ekkja. Bjó eftir það að Mounain,
N. Dak., þangað til þau fluttu til Bellingham,
Wash., 1913. Þar var hann í sjö ár. Fluttu þá, þ.
e. árið 1920, heim til íslands og er nú hjá stjúp-
dóttur sinni, Sigurbjörgu Ögmundsdóttur að Ytri
Njarðvík.
Helga Arinbjörnsdóttir, (seinni kona Jakobs)
var fædd í Tjarnarkoti í Ytri Njarðvíkum, Gull-
bringusýslu, þ. 20. apríl 1863. Foreldrar hennar
voru Arinbjörn Ólafsson, bóndi í Tjarnarkoti og
kona hans Kristín Björnsdóttir. Helga ólst upp
hjá foreldrum sínum og giftist þar fyrri manni
sínum, Ögmundi Sigurðssyni frá Barkastöðum í
Fljótshlíð. Foreldrar hans voru Sigurður ísleifs-
son og Ingibjörg Sæmundsdóttir frá Breiðaból-
stað. Helga og Ögmundur bjuggu allan sinn bú-
skap í Tjarnarkoti. Börn þeirra, sem upp komust,
eru: Kristín, Sigurbjörg Ólafía og Ögmundína, all-
ar búsettar á íslandi. Árið 1894 misti Helga mann
sinn. Fluttist til Ameríku 1901 með Sigurbjörgu
dóttur sinni, þá 8 ára, og settist að á Mountain,
N. Dak., og giftist þar Jakobi. Áttu þau samleið
eftir það, þangað til árið 1919, að Helga fór til
íslands með Sigurbjörgu dóttur sinni, og var eftir
það hjá Kristínu dóttur sinni í Vestmannaeyjur:.,
þar til hún dó, 20. ágúst 1924.
Á þeim árum, er þau hjón, Jakob og Helga,
bjuggu í Bellingham, kyntist eg, sem þetta rita,
þeim nokkuð, og naut, sem fleiri, gestrisni þeirra.
Til þeirra var gott að koma. Bæði skýr í bazta
lagi, frjálslynd, vel lesin og ljóðelsk. Litla heimilið
svo vistlegt, og bar vott um framúrskarandi um-
gengni úti og inni, og viðmótið eins og þar væri
um æfilanga vináttu að ræða, enda nutu þau að
verðleikum almennrar hylli.
Jónas Tryggvi Jónasson er fæddur 1862 að
Brimstöðum við Mývatn. Ólst hann upp hjá móð-