Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Side 70
68 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Ekki er nema réttmætt að geta þess, að
heimili þeirra Björns og Helgu í Þingvallabygð
var orðlagt fyrir gestrisni og höfðingsskap.
Börn þeirra voru þessi: Þorleifur, f. 18. apríl
1882, d. 10. apríl 1887; Þorbergur, f. 27. maí 1884,
d. 17. júni 1887; Jón Reykjalín, f. 28. september
1884, d. 22. júní 1887; Sigríður, f. 1888, d. 1893; Jón
Reykjalín, f. 1890, d. 1891; Þorbergur, f. 29. des-
ember 1892; Helga Sigríður, f. 14. marz 1900; Guð-
rún Jónína, f. 22. júní 1903, gift Jóhanni P. Kristj-
ánsson.
Eftir að Björn fluttist til Þingvallabygðar,
gerðist hann brátt leiðtogi í félagsmálum bygðar-
innar. Þegar fyrsta árið, sem hann var þar búsett-
ur, var hann kosinn í skólanefnd Lögbergsskóla,
og varð skrifari og féhirðir skólans. Hélt hann því
starfi í 24 ár. Skömmu síðar varð hann einn af
stofnendum Koncordia-safnaðar, og var undir eins
á fyrsta fundi kosinn skrifari safnaðarins, og var
síðan skrifari hans í 25 ár samfleytt. Auk þess
var hann oft fulltrúi safnaðarins á þingum kirkju-
félagsins.
Rétt fyrir aldamótin stofnuðu íslenzkir bænd-
ur í Þingvallabygð dálítið verzlunarfélag og settu
á stofn sveitarverzlun. Varð Björn fyrsti forseti
félagsins og verzlunin á heimili hans fyrstu árin.
Eftir nokkur ár lét hann þó af því starfi, og annar
maður tók við verzluninni. En sennilega hefir
reynsla Björns við íslenzku verzlunina, og svo
annað hitt, að hann var þektur að því að vera
drjúgur liðsmaður hverju því máli, er hann léði
fylgi sitt, orðið til þess, að þegar “Félag Korn-
yrkjumanna” (“United Grain Growers”) stofnaði
deild við Ohurohbridge og setti á fót verzlun þar í
bænum, var Björn kosinn ráðsmaður (secretary-
manager) deildarinnar. Annaðist hann innkaup
öll og bókhald verzlunarinnar. En sökum þess,