Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Side 56
MAIUUlRA-TÖFliURIfAR.
ÆFINTÝRI
eftir J. Magnús Bjarnason.
í fornöld var muáleri eitt mikið og fagurt á veátari
bakka fljótsins Evfrat. Það mikla hús hafði hin ágæta
Kaldea-drotning, Neth-aker hin egyfzka, látið reisa og
nefnt t>að: Muáteri fagra liáta. Attu allir liátamenn og
rithöfundar í Mesópótamíu griðaátað þar, og máttu ala
þar aldur sinn, ef þeim svo þóknaðiát.
Það var einn dag, að Neth-aker drotning gekk til
muáterisins með hirðmeyjum sínum. Skoðaði hún lit-
myndirnar fögru og hinar höggnu lágmyndir, sem prýddu
veggi þessa veglega húss. Hún leit líka yfir það, sem
skáldin og rithöfundarnir skrifuðu á leirflögur og bronze
og gulltöflur,
“Hvað skrifið þið?” sagði hún við þá, sem rituðu á
leirflögurnar.
“Við skrifum það, sem við ber daglega í ríki þínu,
volduga drotning," sögðu þeir.
“En hvað skrifið þið?” sagði hún við þá, sem voru
með bronze-plöturnar.
“Við skrifum lögin og lífsreglurnar,” svöruðu þeir.
“Og hvað er það, sem þið ritið á þessar fögru töflur?”
spurði hún þá, sem sátu yfir gulltöflunum.
Þá svöruðu þeir og sögðu:
“Við ritum um þau miklu furðuverk, sem þú, göfuga
drotning, hefir látið framkvæma í hinni miklu borg þinni:
hallirnar skrautlegu, hina dýrðlegu skemtigarða, gos-
brunnana átóru, hina óviðjafnanlegu hangandi aldin-
garða, og ótal mörg önnur átórvirki, sem seint verða upp
talin.”
Þá broáti Neth-aker drotning og sagði:
“Haldið áfram að rita!”