Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Side 61
61
Sólheimum í Sæmundarhlíð, faðir dr. Jóns skólameistara I
Rvík. — Móðir Margrétar Árnadóttur var Margrét Gests-
dóttir bónda á Varmalæk Jónssonar. Hennar móðir var
Helga, dóttir Halldórs próf. á Melstað, Ámundasonar og
fýrri konu hans Helgu Grímsdóttur.
Margrét var 14 ár ráðskona hjá Marteini. Þeirra son er
Karl. Hann er til heimilis hjá móður sinni í Árborg. Dóttur
eignaðist Margrét heima á Islandi, er heitir Guðrún Elisabet,
sem gift er Eiríki Sólberg Stefánssyni kaupmanns í Hnaus-
um Sigurðssonar. Faðir hennar var Jón kaupfélagsstjóri
Stefánsson prests, Desjamýri, Péturssonar prests á Val-
þjófsstað.
Leiðréttingar og viðaukar við landnámssögu
Ceysisbygðar
Bls. 39. Halldóra kona Jóhannesar Guðbrands, var dóttir
Bjarna bónda í Knarrarhöfn í Hvammssveit, Jónssonar
bónda í Sælingsdalstungu, Magnússonar skálds á Laugum,
“er kallaður var Jónsson, en haldinn son Magnúsar á Efra-
Núpi í Miðfirði, Pálssonar lögmanns Vídalíns.” (S.m.æ. II.
bl. 388).
Bls. 60. James Frímann er ekki rétt. Það er: James
Irvine.
Bls. 58—86. Það gleymdist að geta þess, að þau hjónin
Jón Pálsson og Ágnes Magnúsdóttir tóku til uppfósturs pilt
á öðru ári, er mist hafði móður sína. Drengurinn heitir
Sigurður. Móðir hans var Rósa Jónina, dóttir Einars
Markússonar á Viðarhóli í Árnesbygð. En faðir hans er
Sigurður sonur Einars Jónssonar frá Landamóti. Nú er pilt-
urinn 16 ára. Hann hefir notið mikils ástrikis af fóstur
foreldrum sínum og verið þeim til hinnar mestu ánægju,
áhugasamur og skarpur við lærdóminn, en ötull og kapp-
g'jam að vinnu og hinn siðsamasti unglingur. Var mjög
óverðugt að þessa uppfósturs væri að engu getið, sem er
þeim góðu hjónum til hinnar mestu sæmdar.
Bls. 104. Bjarni vill láta þess getið, að foreldrar hans
bjuggu ekki nema tvö ár í Fosskoti og að hann kallar það
ekki “dagbækur” er hann hefir skrifað sér til minnis.
Magnús Sigurðsson á Storð.
& & &