Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Qupperneq 21
23
saman um aS stofna félag sem “Menningarfélag” nefnist.
Var forstöSunefnd kosin, skipuð t>rem mönnum, Brynj-
ólfur Jósefsson formaður, Jón Jónsson og Jón Júlíus
Arnason. Aðal stofnfundur haldinn 1 3. des., lög sam-
bykt og 73 meðlimir skráðir. Þegar í byrjun og sam-
kvæmt heimildum bætast 8 nýjir meðlimir í hópinn
veturinn 1887-8. Aftur gengu nokkurir úr félaginu, sem
stafaði af ósamlyndi er varð út af safnaðarstofnuninni
og afdrifum hans. __ En nöfn beirra Jóns Júlíusar Árna-
sonar og Hjálmars Árnasonar ásamt fjölskildum behra
dregin út af meðlimaskránni. Utan við Menningar-
félagið stóðu beir Magnús Jónsson frá Fjalli og Pétur
Pálsson. Lög félagsins eru skráð í 1 2 liðum og lýsa bau
hugsunarhætti félagsmanna, er beim bó í ýmsu ábóta-
vant. Samkomuhúsið er bar skýrt sett undir umsjón
Menningarfélagsins til eignar og umráða. 8. gr. laganr.a
hljóðar svo: “Vilji félagsmanna er að efla sameiginlega
heill allra meðlima félagsins í mentandi og kristilegu
tilliti”. 9. gr. hljóðar svo. “Ef einhver eða einhverjir
meðlimir félagsins verða fyrir stórskaða eða slysi ogyrðu
bar af leiðandi hjálparburfar, vill félagið ba í heild sinni
rétta beim hjálparhönd, eftir bví sem efni og kringum-
stæður leyfa”. 10 gr. laganna tekur baÖ fram, að allir
karlar og konur hafi kosningarrétt og kjörgengi, sem
náð hafa I8áraaldri. Félagið gekst fyrir kappræðum
og samkomuhöldum og hafði bað góð áhrif til menning-
arbroska. Menningarfélagið starfaði ekki lengi en bað
kom róti á hugsanalíf fólks og vakti menn til umhugs-
unar um menningarmál. Er Menningarfélagið leið undir
lok var “íslenzka Lestrarfélagið í Cypress-sveit” stofnað.
Er bað veigamesti félagsskapurinn í sögu bygðarinnar.
Stóð bað lengi með miklum blóma og er enn við lýði.
Gekst bað fyrir kappræðum, almennum samkomuhöld-
um og sjónleikjum. Auk bess keypti bað alt sem kostur
var á af íslenzkum bókum og kom sér upp merkilega
góðu bókasafni. — Fyrsti sjónleikur, sem sýndur var í
bygðinni var “Misskilningurinn” eftir Kristján Jónsson
skáld, var hann sýndur brjú kvöld í röð og alt af húsfyllir.
Leikflokkurinn var undir stjórn Sigurðar Thorarensen,
kennara og tókst ágætlega. Voru ba í bygðinni margir