Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Side 25
27
það var gler og veikt sem vér
völt eru ker í heimi.”
Margrét dó á íslandi. Seinna kona Jóns var Guðrún
Sigurðardóttir ættuð úr Stéttuhlíðinni, hét móðir hennar
Halldóra Björnsdóttir, kom hún vestur með dóttir sinni
og dó hjá henni háöldruð. Greind kona og skörulee,
ræðin og skemtileg. Hún dó í Glenboro í nóv. 1913.
Jón var félagslyndur maður og tók mikinn þátt í félags-
málum. 1899 var pósthús stofnað í Hólabygðinni og
var sett á heimili Jóns, var það nefnt Skálholt, var Jón
kjörinn póstafgreiðslumaður, gegndi hann þeim starfa á
meðan hann var í bygðinni og flutti hann einnig póstinn
frá Glenboro vikulega öll þau ár. I skólaráði sat hann
lengi og gengdi skrifara og féhirðis störfum. Hann
komst fljótt niður í málinu og skrifaði enska tungu full-
um fetum. Hann átti drjúgan játt í því að ísl. sam-
komuhúsið í Glenboro var bygt, og að stofnun Glenboro
safnaðar vann hann, og var öflugur styrktarmaður hans
á meðan hans naut við. Jón var prýðilega vel skáld-
mæltur, en fór dult með þá gáfu. Vel máli farinn var
hann og talaði hann oft á mannfundum, hann var í öllu
snyrtimaður, bar á sér snið mentaðra manna, var maður
í hærra lagi, beinvaxinn og öldurmannlegur í sjón, karl-
menni til burða og harðskeyttur. Sumarið 1920 dvaldi
hann í Saskatoon hjá Sölva syni sínum þar. Kom aftur til
Glenboro og dó þar 2. júní 1923. Jón var kynsæll mað-
ur, eru á lífi 15 börn hans. Af fyrra hjónabandi eru
þessi : 1. Sölvi, lyfjafræðingur, nú ráðsmaður fyrir lífs-
ábirgðarfélag í Saskatoon, Sask. Kvæntur hérlendri konu.
2. Margrét, gift hérlendum manni, býr í Bladworth, Sask.
3. Þorbjörg, gift hérlendum manni, á heima í Washing-
ton ríkinu. 4. Jón Júlíus, giftur hérlendri konu býr í San
Jose, Cal. 5. Benedikt, giftur Ágústu Jónsdóttir Helga-
sonar bónda í Argylebygð. 6. Málfríður, gift Guðm.
Stefánsyni, ættaður úr Skagafirði; þau búa í Winnipeg.
7. Kristín, gift J. M. Johnson í Prince Rupert, B. C.
8. Aðalheiður Rósa, merkiskona á Hrísum í Víðidal í
Húnavatnssýslu; er fyrir nokkuru dáin. Af síðara hjóna-
bandi eru þessi álífi: I. Hannes, bóndi í Hólabygðinni,
giftur Jóhönnu Björnsdóttir Heiðman frá Ármótaseli.