Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 39
41
heilsuhælið hefir samið rit um vígi þau með ánni í
námunda við Ó3a Souris-árinnar (Early Assiniboia
Trading Posts of the Souris-Mouth Group 1785 - 1832)
og minnist hann þar á Pine Fort allgreinilega. Annar
merkur Canadiskur saguritari, J. B. Tyrrell, kannaði
vígisrústirnar með fram ánni 1890 og voru þá enn
greinileg vegsummerki af Pine Fort og hefir hann skrifað
um það ítarlega og þegar eg, sem þetta rita, kom á
þessar stöðvar fyrst 1895 sáust glögg merki vígisins og
merki þess að þar hefðu verið mannabústaðir á löngu
liðinni tíð. — A þessum stað bygði Sigríður Bjarnadóttir.
Hún kom til þessa lands 1888 með Guðmund son sinn
ungann. Fyrst var hún í Nyja ísl., síðar um tíma í Dak.
í Nýja isl. giftist hún Þorsteini Ásgrímssyni, en naut hans
skamma stund, hann druknaði í Winnipegvatni haustið
1890 ásamt félaga súnum, Þórarni Jónssyni, bróðir
Magnúsar frá Fjalli. Sigríður bjó um nokkur ár á landi
sínu í Hólabygðinni með syni sínum Guðmundi, sem
hér segir frá á öðrum stað. Seldi hún síðan landið, en
ætið átt heima hjá honum. Sigríður er vel greind kona
fróðleiksgjörn og mannkostum búin, sem hún á kyn til.
Hún var eina konan sem land nam í Hólabygðinni og
bjó sjálf á landeigninni. Hún er alsystir Guðbjargar
Bjarnadóttir’ konu Þorbergs Jónssonar.
SIGURJÓN BJÖRNSSON, fædd ur á Stórabakka í
Tunguhrepp í N.-Múlas. Foreldrar hans voru Björn
Sigurðsson og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Sigurjón
misti föður sinn þriggja ára og' móðir hans lét þá af
búskap. Var hann þá tekinn í fóstur af Ólafi Sigurðs-
syni og var hjá honum í þrjú ár. Næstu þrjú árin
var hann hjá Magnúsi Sigurðssyni á Litlasteinssvaði í
Hróarstungum, síðan eitt ár á Gilsárteigshjáleigu og upp
frá því hjá móðurbróðir sínum, Rustikus Jónssyni á Nesi
í Loðm.firði til tvítugsaldurs. Árið 1893 giftist hann
Jónu Kristínu Jónsdóttir frá ísafirði, er hún systir Hinriks
Jónssonar bónda við Ebor í Manitaba. Jóna er mikilhæf
kona, sem hún á kyn til. Þau hjón byrjuðu búskap á
Dallandi í Borgarfirði í N.-Múlas. og bjuggu þar í tíu ár.
Fluttust til Ameríku 1903 og til Winnipeg og dvöldu þar