Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 54

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 54
56 I. Arthur Middleton Reeves var fæddur 7. október 1856 í borginni Cincinnati, í Bandaríkjunum og ólst þar upp fyrstu tíu ár æfi sinnar; fluttist hann þá með foreldrum sínum á sveitarbýli í nágrenni við borgina Richmond í Indíana og átti þar jafnan síð- an heimilisfestu, þegár hann var ekki í ferðalögum. Hann var af góðu bergi brotinn; faðir hans, sem búið hafði við þröngan kost framan af, gerðist, með framsækni, ráðvendni og iðjusemi, áhrifamað- ur og auðugur vel. Naut Arthur því ágætrar upp- fræðslu í æsku og varð snemma víðförúll. Á ferm- ingaraldri ferðaðist hann með foreldrum sínum og systrum um Norðurálfu og Miðjarðarhafslöndin; reit hann þá, þó korungur væri, dagbækur yfir það helsta, sem fyrir augun bar, er vitna glögt um skarpa eftirtekt hans og meðfædda frásagnargáfu. Haustið 1872 hvarf hann heim til Richmond og hélt áfram úndirbúningsnámi sínu, en jafnframt lærði hann prentiðn og kom upp prentsmiðju, sem færði brátt út kvíamar undir forsjá hans; ráðdeild hans og athafnasemi komu því snemma á daginn, en aldrei beindust þær hjá honum að auðsöfnun einni saman. í september árið eftir innritaðist Reeves í Cor- nell-háskólann, en sökum veikinda lauk hann ekki námi fyr en vorið 1878. í fyrstu bar lítið á honum, því að hann var dulur í skapi og seintekinn, en frábærar gáfur hans og annað atgerfi drógu að sér athygli kennara lians og skólasystkyna er stúndir liðu og á seinni háskólaárum sínum var hann for- ystumaður í andlegu lífi stúdenta, meðritstjóri viku- ritsins “The Cornell Era” og ritstjóri ársritsins “The Cornelian”; síðasta skólaár sitt gaf hann einnig út vikublað með myndum, sem stóð með miklum blórna meðan hans naut við. Hafði hann því sannarlega æði mörg járn í eldinum. En þó hann rækti nám sitt vel og léti mikið til sín taka ýms menningarmál, tók hann einnig drjúgan þátt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.