Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Síða 73
75
dó þann 13. marz 1926. Kristín hélt áfram að vera
hjá dóttur sinni Sigurveigu og andaðist í liennar
húsi þann 23. október 1933. Hún var jörðuð við
hlið mannsins síns í grafreit Elfros-bæjar, og jarð-
sungin af séra W. J. Bulliment, enskum presti.
Börn þeirra Guðvalds og Kristínar eru þessi:
1. Sigríður, giftist Jóni Hallgi’ímssyni frá Vak-
ursstöðum í Vopnafirði. Þau fluttust vestur um
haf sumarið 1903 og settust að í Roseau-bygð í
Minnesota. Þau eignuðust 13 börn og eru fimm
þeirra á lífi, þegar þetta er skrifað. Jón er dáinn
fyrir nokkrum áum, en Sigríður er til heimilis í
St. Paul, Minn.
2. Guðjón á heima í Grand Forks í N.-Dakota,
Hann rak um eitt skeið verzlun fyrir eigin reikning
suðu'r í Iowa í Bandaríkjunum. Hann er tvíkvænt-
ur; hét fyrri kona hans Helena Grovum, og var af
norskum ættum. Þau eignuðust fjögur börn, og
eru tvö þeirra dáin. Seinni kona Guðjóns heitir
Kristjana Bjarnadóttir, og eiga þau tvö börn.
3. Sigurveig (ógift) á heima í Elfros, Sask., og
vinnur þar við póstafgreiðslu; hún vann út, svo að
kalla stöðugt, frá því, að hún kom frá íslandi, þá
unglingur fyrir innan fermingu, og var hún í einni
vistinni í tuttugu ár, eða lengur.
4. Björg er gift Sveini lögmanni Björnssyni í
Seattle, Wash. Þau eiga fjögur börn.
5. Eymundur átti Ingibjörgu Eiríksdóttur, Sum-
arliðasonar. Þau eignuðust fjögur börn. Eymund-
ur dó haustið 1922. Hann var atorkumaður mikill,
eins og faðir hans, hygginn og hagsýnn, og hinn
mesti afbragðsmaður. Ekkja hans og börn búa á
landi iþví, er hann nam í grend við Elfros-bæ.
6. Elín giftist Haraldi Björnssyni, Einarssonar, frá
Brú á Jökuldal; bjuggu þau nokkur ár nálægt
Kristnes-pósthúsi í Vatnabygðum, en fluttust það-
an til Elfros, og rak Haraldur þar verzlun uto tíma.
Börn þeirra eru fimm. Haraldur dó árið 1932. En
Elín er til heimilis í Wynyard, Sask.
7. Sigþrúður er gift Jóni Hallgrímssyni Good-