Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 4

Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 4
4 legu móki, sneyddi sig hjá opinberum ávirðingum, en leitaði sjer þó dægrastyttingar í fánýtri heims- gleði, enda va.ntaði ekki peningana. I3á veiktist bróðir hans, sem hann unni af hjarta. Hann var hjá honum dag og nótt. Veik- indin voru lengi tvísýn, en sjúklingurinn varð lækn- ir þess heilbrigða. Sjúklingurinn vildi ekki láta lesa neitt annað en ritninguna fyrir sig, og helzt ekki tala um annað en Jesúm. Slíkt hlaut að hafa á- hrif. Báðir urðu alhressir, annar í líkamlegu og hinn i andlegu tilliti. Skömmu síðar hlustaði Studd á Moody nokkrum sinnum, og þá vannst fullur sig- ur. Eptir það setti hann aldrei ljós sitt undir mæli- ker eins og áður, og eins og svo margir gjöra, sem þykjast þó ætla til himna. Innan skamms gaf Guð honum þá gleði, að geta hjálpað einum vina sinna til Jesú. Studd segir sjálfur frá því á þessa leið: „Mjer er ómögulegt að lýsa gleði minni, þegar jeg leiðbeindi sál í fyrsta skipti upp að krossi frelsar- ans. Jeg hef reynt flestar unaðssemdir, sem heim- urinn býður, en þær eru einskisvirði í samanburði við þá gleði". Annar efnilegur stúdent í Cambridge hjet Stan- ley P. Smith. Hann var betri ræðari en flestir aðrir, og hafði unnið sjer frægðarorð með því. Hann var og mjög vel máli farinn. Þessi stúdent varð og gagntekinn af Kristi, og fór þá vinátta þeirra Studds og hans mjög vaxandi. Nokkru eptir þessa breytingu gaf Studd allar

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.