Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Page 18

Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Page 18
18 við fleiri en menn eina. Hann fjell þá á knje og bað á þessa leið: „Ó, Drottinn, þú komst til að frelsa syndara, jeg er syndari. Þú komst til að leita að hinu glataða og frelsa það; jeg er glataður, get ekki frelsað mig sjálfur. Pú sagðir: „Jeg mun engan hrekja burt, sem til mín kemur". Jeg kem til þín og get ekkert fært þjer nema sjálfan mig. Jeg kem hvorki með loforð nje ásetninga; jeg hef hvort sem er aldrei haldið nein loforð. Jeg kem eins og jeg er, og treysti þjer“.—Litlu síðar lagð- ist hann ánægður til svefns, en það hafði hann ekki gjört í mörg ár. Hoste þótti heldur en ekki vænt um morgun- inn eptir, þegar hann sá breytinguna, sem orðin var á höfuðsmanninum, og heyrði hann vegsama náð Drottins. Þeir báðu saman morgunbæn sína. Kristniboðarnir hjeldu samkomu á skipinu á hverjum degi. Farþegjunum brá heldur en ekki í brún, þegar höfuðsmaðurinn bað sjer hljóðs á næstu samkomu og fór að vitna um Krist. Hann, sem jafnvel daginn áður fór með guðlast, skoraði nú al- varlega á áheyrendurnar að koma að krossinum á Golgata og hvítfága skikkjur sínar í blóði lambsins. „Það er svo einfalt, barnslegt traust og ekkert ann- að“, sagði hann. Upp frá því talaði hann nærri því hvern dag á samkomunum, og sagði við hvern, sem hann talaði við, að hann mætti til að vitna um náð Krists og kærleika hans, sem hann hefði sjálf- ur reynt svo áþreifanlega.

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.