Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Side 37

Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Side 37
37 Vér höfum önnur betri úrræði. Vér getum kannast við synd vora og gefið oss honum á vald, sem minkaði sjáifan sig og tók á sig þjóns mynd til þess að kenna oss, að vér þrátt fyrir hverfulleik vorn og staðfestuleysi, erum þó guðs l)örn, ekki dýr, ekki alháð endanleikanum, að guð er ástríkur fað- ir vor, og í opinn faðm hans getur jafnvel hinn mesti syndari flúið. Þá er vér felum oss honum, sem sameinaði í sér hið guðdómlega og mannlega, sem safnaði í sér allri þeirri þjáning, ailri þeirri líkamlegri og andlegri kvöl, sem unt er að hugsa sér, þá lyftir hann oss upp á sína sterku arma og hjálpar oss til að klifra upp klettastiginn, upp á við til hins eilifa ríkis. Eins og barnið fylgir móður sinni með fuilu trausti, þannig eigum vér að fylgja honum án þess að brjóta heilann um, hvernig eigin- lega muni vera umhorfs þar uppi, hvað vér eigum að taka oss fyrir hendur, og svo framvegis. — Vér eigum að láta hann um það, hertaka alla hugsun undir hiýðni Krists, treystandi því, að sú dýrð, sem koma á, sé meiri en svo, að nokkur maður geti sett sér hana fyrir sjónir. — Spyrja má, hvaðan eg hafi þetta traust, að til sé í raun og veru frelsari, endurlausnari. — Það hefi eg af því, að eg hygg að skynsamleg hyggja lýsi sér í heiminum, og af því, að eg get ekki hugs- að mér heim fullan af lifandi verum, gæddum sjálfs- vitund, er ofurseldar væru örvæntingu eða glötun. I’að hefi eg af því, að eg hefi kannast við vanmátt

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.