Muninn

Årgang

Muninn - 29.10.1987, Side 10

Muninn - 29.10.1987, Side 10
ÞETTA ER AUGLÝSING TAKIÐ EFTIR: Skólinn og skólafélagið keyptu á síðasta skólaári fyrirmyndar myndbandstökuvél sem ber heitið Panasonic og einkennisstafina NV- M5B. Þetta er fjölhæf vél sem notar VHS spólur og eru þær settar í vélina sjálfa. Hægt er að nota hana sem myndbandstæki, setja hljóð inn á myndir sem teknar hafa verið o.fl. Vonast er til þess að vélin verði mikið notuð í vetur enda var hún til þess keypt. í vetur verður skipuð stjórn sem sér um öll mál myndavélarinnar. Þegar eru komnir í stjórnina tveir gamlir og reyndir menn, en þeir verða fulltrúar 2. og 3. bekkjar í stjórn. Þá vantar eins og gefur að skilja fulltrúa fyrir bæði 1. og 4. bekk. Þeir sem hafa áhuga á þessu starfi eru beðnir um að koma umsóknum í kassa Munins fyrir 15. nóvember n.k. Umsækjendum verður að vera hægt að treysta fullkomlega fyrir vélinni, einnig þurfa þeir að kunna að fara með svona vélar og helst verða viðkomandi að hafa einhverja reynslu í myndatöku. Einnig verður áreiðanlegum nemendum leyft að fá vélina lánaða í stuttan tíma, þá til nota við kvikmyndagerðar, eða við töku á einhverju semtengist skólanum. Kennarar hafa sjálfsagt ráðgert einhverjar tökur og munþá stjórn MYMA vera þeim innan handar við töku þeirra mynda. Langflestir atburðir í skólanum verða teknir upp á band og er þetta því töluvert starf þegar mikið fer að gerast í félagslífi skólans. Þó ætti það ekki að vera neinum ofviða. Myndbandstökuvélin er ný og því vantar eðlilega marga aukahluti með henni en þeir verða vonandi keyptir í vetur. Mynbandasafn er byrjað að myndast og verður öllum myndum haldið til haga og á vegum stjórnar MYMA verða vonandi einhverjar þeirra sýndar í vetur. Þegar eru komnar tíu fullar spólur og verður fjöldi þeirra á vetri svona 10 til 15. Vonast er til að samstarf milli VMA og MA geti orðið í vetur því með samstarfi við aðra skóla skapast grundvöllur fyrir betri myndatökum og fjölbreyttara myndefni. VMA-menn eru nokkuð sjóaðir, hafa átt vélina sína í nokkur ár, en það er 8 mm SONY vél. Þeir eiga töluvert af fýlgihlutum fyrir vélina sína og reynsla er einnig fýrir hendi og því er gott að fá ráð hjá þeim. Þá er bara að skrifa nafnið sitt og bekk á blað og stinga því í umslag og svo í kassann ef þú ert áhugasamur áhugamyndari. Nánari upplýsingar fást hjá Jóni Hjalta í 4U, Baldri 3X og Hauki 2X. Mynd- bands- töku- vélin

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.