Muninn - 29.10.1987, Blaðsíða 53
sinni á önn halda fund með
formönnum félaga og öðrum
framámönnum í félagslífi
skólans til samræmingar á fé-
lagsstarfi annarinnar.
III
HAGSMUNARÁÐ
1. Ráðið heitir hagsmunaráð
Hugins.
2. Hagsmunaráð fjallar um og
gætir (sameiginlegra) hags-
muna nemenda, gagnvart
þeim sem standa að og sjá um
skólann og skólastarfsemi, í
umboði stjórnar skólafé-
lagsins.
3. Hagsmunaráð fjallar um:
1) breytingar á kennsluhátt-
um og öðrum starfsháttum
skólans í samráði við skóla-
stjórn.
2) vandamál sem upp kunna
að koma í sambandi við al-
menn skólastörf.
3) önnur mál sem einstakir
nemendur eða skólastjórn
æskja að hagsmunaráð taki
afstöðu til.
4. Hagsmunaráð er skipað
fimm mönnum, forseta og ein-
um manni úr hverjum bekk að
auki. Þeir skulu kosnir á aðal-
fundi II, nema fulltrúi 1.
bekkjar.
5. Hagsmunaráð leitast við að
útvega afslátt í verslunum
bæjarins, félögum til handa,
og birtir upplýsingar þar um
til nemenda.
6. Hagsmunaráð hefur rétt til
að skipa nefndir eða einstakl-
inga til starfa við hagsmuna-
mál.
7. Hagsmunaráð felur forseta
sínum að krefjast skóla-
fundar, ef það vill fá álit
nemenda á einstökum málun,
sem skólastjórn hefur til með
ferðar. Fulltrúar nemenda
túlka svo aftur niðurstöður
skólafundar þar.
8. Hagsmunaráð skal afla
upplýsinga og gagna eftir
föngum um þau mál sem
liggja fýrir skólafundum. Slík
gögn skulu liggja fýrir á fund-
unum.
9. Hagsmunaráð skal taka af-
stöðu til viðbragða skólas-
tjórnar (eða viðkomandi aðila)
við ályktunum skólafundar
og taka ákvarðanir ásamt
stjórn félagsins um hugsan-
legar aðgerðir, málinu til á-
réttingar.
10. Hagsmunaráð skal sjá um
skipun fulltrúa nemenda í
skólastjórn samkvæmt úrslit-
um kosninga á aðalfundi II.
IV
SKÓLABLAÐIÐ MUNINN
1. Blað skólafélagsins heitir
Muninn.
2. Efni þess skal ávallt leitast
við að hafa sem fjöbreyttast.
3. Auk ritstjórans skal rit-
stjórn blaðsins skipuð sex
nemendum, einum fulltrúa úr
hverjum bekk og tveimur að
auki. Skulu þeir kosnir á aða-
lfundi II, nema fulltrúi 1.
bekkjar.
4. Ritstjóri blaðsins skal vera
ábyrgðarmaður þess.
5. Ritstjórn á rétt á því, að
nota fullt nafn. Leyfilegt er að
birta dulnefni.
6. Skólafélagið styður ekki
fjárhagslega önnur blöð en
Munin.
7. í blaðinu skal birta reikn-
inga skólafélagsins eins og
kveðið er á um í II.3
V
MÁLFUNDAFÉLAG
HUGINS
1. Félagið heitir Málfunda-
félag Hugins.
2. Félagar eru allir félagar
Hugins.
3. Tilgangur félagsins er að
gefa mönnum kost á að æfa sig
í ræðumennsku og framsögn
og skal félagið ná tilgangi
sínum með því að halda fundi
eins oft og stjórn þess þykir
tilefni gefa til. Þar inn í skal
falla mælskukeppni og e.t.v.
sameiginlegir málfundir með
öðrum skólum. Auk þessa
skal félagið efna til mælsku-
námskeiða.
4. Stjórn félagsins skipa fimm
menn: Formaður, ritariogþrír
meðstjórnendur. Formaður er
kosinn á aðalfundi II. Aðrir
meðlimir stjórnarinnar eru
kosnir af félögum í M.F.H. á
aðalfundi félagsins.
5. Stjórn málfundafélagsins
skal skipta með sér verkum.
1) Formaður skal hafa stjórn
félagsins á hendi sér ásamt
öðrum stjórnarmeðlimum.
Formaður er fundarstjóri á
málfundum nema hann skipi
annan í sinn stað.
2) Ritari skal halda gjörðabók
félagsins og rita í hana fundar-
gerðir, er samþykktar hafa
verið á fundum. Skal hann
einnig vera fundarritari sé
ekki annar skipaður í hans
stað.
3) Meðstjórnendur skulu að-
stoða við val efnis og allan
undirbúning funda.
6. Reglusemi skal gætt í hví-
vetna á fundum félagsins og
skal fundarstjóri styðjast við
almenn fundarsköp.
** ffff ánO' 53