Muninn

Årgang

Muninn - 29.10.1987, Side 25

Muninn - 29.10.1987, Side 25
skilst mér. Ég veit ekki hvernig þessi hefð var, ég þekki það ekki hvernig þessir slagir voru þegar þeir voru sem verstir. Þetta var svona smá tusk á meðan ég var hérna, t.d. stilltumenn sér upp í röð báðum megin á ganginum frammi og hentu fólki svo á milli sín sem var að ganga framhjá. Þetta var dá- lítið sport, fólki fannst þetta sniðugt. En af hefðum fannst mér Salur eftirminnilegastur. Var þá verið að syngja söngsal bara si sona? Já, já. Það var oft söngsalur, en miklu oftar var hringt á Sal. Það var þá oft vegna gesta sem létu sjá sig í skólanum og höfðu eitthvað að segja við nemendur. Einnig talaði skólameistari oft yfir okkur á Sal af ýmsu tilefni. Þórarinn Björnsson sem var mjög sterk- ur og eftirminnilegur per- sónuleiki átti það til að kalla á Sal til að minnast afmælis eða einhvers. Mér er það sérstak- lega minnisstætt þegar Þórar- inn kallaði okkur saman á Sal og talaði við okkur um Einar Benediktsson, las ljóð eftir hann og túlkaði þau og út- skýrði jafnóðum. Það væri auðvitað mjög gaman ef Jóhann kallaði á Sal og minntist ýmissa skálda sem ættu afmæli. Það væri náttúrulega gaman, en þettar er auðvitað ekki á hvers manns færi! Að sjálf- sögðu verður líka hver að hafa sinn stíl. Varst þú ekki eitthvað í félagslífi á sínum tíma? Félagslífi og ekki félagslífi. Ég veit ekki hvað maður á að kalla félagslíf. Það var mjög mikið félagslíf hér í skóla fannst mér. Ég fór snemma að starfa við Munin og þrjú seinni árin var ég í ritnefnd og það síðasta sem rit- stjóri, það var töluvert starf. Einnig starfaði ég í bekkjarráði á hverjum vetri. Skólaböll voru haldin hálfsmánaðarlega, og að þau skulu ekki vera haldin oftar núna er mikil afturför. Einnig störfuðu hér hljómsveitir sem voru í samkeppni hver við aðra, t.d. voru Egill Eðvarðsson, Haukur Ingibergsson og fleiri í hljómsveit sem mér er mjög minnisstæð. Böll voru haldin uppi á Sal, þrumuböll náttúru- lega. Mikið var lagt í undirbún- ing, en bekkirnir skiptust á um að halda þessi böll. Líklega hefur 5. bekkur haldið einna mest af böllunum á hverjum tíma enda var hann í fj árplokksstarfsemi eins og tíðkast núna en annars var þessu skipt. Bekkirnir áttu ákveðin böll, það var hlöðuball, grímuball og ég veit ekki hvað og hvað. Voruböllin alltaf haldin uppi áSal? Já, alltaf á Sal, og þótti alveg nógu gott. Þegar það voru meiri- háttar böll var skólinn allur skreyttur, tjaldaður að innan eða límdur pappírinnaní stofur og málað og skreytt. Menn eins og Sverrir Páll og fleiri listamenn störfuðu svo vikum skipti í skreytinganefnd áður en hægt var aðhalda skemmtunina. Til dæmis var þetta gert fýrir 1. des., og þá er náttúrulega ennþá skreyú dálítið, en áður lögðu menn nótt við dag við að vinna við þessar skreytingar sem oft voru mjög íburðamiklar, þannig að það sem þið eruð að gera núna er ekki nema svipur hjá sjón, hvort sem þið trúið því eða ekki! Skemmtiatriði voru sjálfsagður hlutur á þessum böllum til að draga fólk að, svo ekki sé talað um hljómsveitir. Og auðvitað var allt “live“ í þá daga, ekkert diskótek eins og núna. Voru svipuð félög starfandi þá og nú? Eg held að það hafi verið eitthvað svipað. Ég man eftir einu félagi sem starfaði hérna einu sinni og hét FAMA og var sama orðið og “Fame“ í ensku. Þetta var félag menningarvita sem litu mjög stórt á sig. Félagið var ekki litið mjög hýru auga af “alþýðu manna' ‘, þeir þóttu nokkuð merkilegir með sig. Þú varst á þessum tíma í rit- stjóm Munins, hvemig fjár- mögnuðuð þið blaðið? Það var selt, og menn voru á- skrifendur. Enda var þetta blað sem menn sóttust eftir að kaupa og eiga. Blaðið var prentað á gljá- pappír og ekkert mál var að fá efhi. Einnig söfnuðum við aug- lýsingum. Sérstakur auglýsinga- stjóri var í ritnefnd og ritstjóri sá ekki um neitt svoleiðis. Eftir á að hyggja held ég að það hafi verið afar leiðinlegt starf að vera aug- lýsingastjóri! í blaðinu var bókmenntalegt efni. Það voru sögur, ljóð og fastir EUMENIA Alvöru þvottavél í takt við tímann. Vilt þú bætast í stóran hóp ánægðra þvottavélaeigenda? Veldu þá eina af hinum frábæru EUMENIA þvottavélum, þær koma þér þægilega á óvart. Nokkur atriði sem við bendum á: 1. Þyo mjög vel. 2. Þvottatími aðeins 65 mín. 3. Orkunotkun aðeins V& miðað við eldri gerðir véla. 4. Tekur mjög lítið pláss, og er létt og meðfærileg. 5. Góð þjónusta. Verð frá kr. 26.600,- Brekkugötu 7 - sími 26383 áwz- 25

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.