Muninn - 29.10.1987, Blaðsíða 36
þakkað með dynjandi lófataki.
Þennan sama dag kom Muninn
út í fyrsta skipti. Nafnið hefur
sjálfsagt komið til af því að í
nokkur ár hafði skólafélagið
Huginn verið starfandi og þótt
hefur við hæfi að nefna blað
skólafélagsins eftir hinum hrafni
Óðins, en Huginn og Muninn
voru einmitt hrafriar hans.
Ritstjórþfyrsta árgangs Munins
var Karl ísfeld. í fyrsta tölublaði
varað finna lög Munins og þau
getur að líta annars staðar á
þessari síðu. Einnig voru í blað-
inu smásögur og fréttapistill sem
var léttur og meira að segja
nokkuð sniðugur, en það er
merkilegt vegna þess að yfir
höfuð voru smásögumar og
greinamar þungar, alvarlegar og
hátíðlegar.
Næsta blað kom út nákvæmlega
viku seinna. Þar var frásögn af
komu ráðherrans ásamt háfleyg-
um smásögum og ljóðum. Þar
vekur athygli greinumbaktal og
kjaftasögur sem heitir “Það er
sagt‘ ‘. Höfundur kallar sig Gest
eineygða og er greinin mjög
skemmtilega skrifuð.
Aðeins rúmum tveim vikum
seinna kemur þriðja tölublaðið
út og er það með svipuðu sniði og
hin, en þess má geta til gamans
að þar birtist fyrsta auglýsingin í
Munin, þar sem auglýst er hrað-
ritunarkennsla. Næstu blöð em
með mjög svipuðu sniði og verða
tölublöð alls átta þann veturinn.
Karl ísfeld er einnig ritstjóri
annars árgangs og verða tölublöð
alls átta, sem skólaárið þar á
undan, og með svipuðu sniði og
áður. Muninn er þá fjölritaður og
yfirleitt 4 til 6 blaðsíður að stærð.
I þessum árgangi ber hæst tvenn-
ar ritdeilur, aðrar um ‘ ‘mennta-
skólann nýja' ‘ og hvaða áherslu á
að leggja á hverja námsgrein, en
hinar snúast um hvortprestar
eða kaupmenn séu hollari
íslenskri menningu.
Einar Ásmundsson er ritstjóri
þriðja árgangs og þá breytist útlit
blaðsins mikið, farið er að prenta
það og setja í POB. Þannig verða
næstu árgangar Munins. Fljót-
lega fer að verða erfitt að fá efni
í blaðið, ritstjóm þarf að ganga
eftir fólki til að fá ritsmíðar og
em þær þá oftast stflar. Sjaldan
komu nemendur með efhi sem
skrifað hafði verið sérstaklega í
Munin og þá svo til aldrei að
fyrra bragði. Þannig hefur efnis-
öflun yfirleitt gengið hjá rit-
stjóm, jafnt þá sem nú.
Næstu árin komu yfirleitt átta
tölublöð út á ári en þegar líður að
kreppunni fer að síga á ógæfu-
hliðina. Aðeins koma út þrjú
tölublöð af sjöunda árgangi og
næsta skólaár var hætt að prenta
Munin og blaðið þess í stað fjöl-
ritað. Með níunda árgangi verður
sú breyting á útgáfu blaðsins að
skipuð er ritnefnd í stað rit-
stjómar og situr þar kennari sem
einnig er ábyrgðarmaður. Næstu
árin verða breytingar hægar og
blaðið nálgast meir tímarits-
form. Þess má geta að í ritnefnd
fjórtánda árgangs sat Kristján
Eldjám, fyrrverandi forseti.
Blaðið er fremur íhaldssamt
næstu árin, eða áratugina, engar
stórbreytingar verða á útgáf-
unni.
Fertugasti og annar árgangur-
inn er sá síðasti í hinu eldra
sniði. Næsti árgangur er bylting-
arkenndur í mesta lagi. Fyrsta
tölublaðið heitir ekki Muninn
heldur Hælistíðindi, “Útgáfu-
staður Menningarhælið á Akur-
eyri, megin aðstandendur kristi-
legir Marxistar í M.A.“. Nú var
ábyrgðarmaður ekki úr hópi
kennara heldur nemenda, og
skyldi engan undra. Blaðið var
með algjörlega nýju sniði og bak-
síðan var öll lögð undir mynd af
Karli Marx. Annað tölublað er í
svipuðum stfl, en það þriðja
heitir Skólablað M.A. og ábyrgð-
armaður kom úr röðum
kennara. Þó var blaðið einhliða
vinstri sinnað og hatrammt í á-
róðri. Þá var tekið á það ráð að
tvískipta Munin, hann hét
annars vegar Litli Muninn og
hins vegar Feiti Muninn. Litli
Muninn átti að vera stjómmála-
legt baráttublað og hagsmuna-
málgagnen Feiti Muninn átti að
birta listrænar ritsmíðar nem-
enda. Feiti Muninn kom sjaldan
út en Litli Muninn því oftar,
hann var í breytilegu broti,
stundum eins og bæklingur,
stundum eins og dagblað, en
boðskapurinn var ávallt hinn
sami.
Með fertugasta og fimmta ár-
gangi nær byltingin hámarki, á-
byrgðarmenn eru úr hópi nem-
enda og svo fer að blaðið fær heit-
ið Rauði—Muninn. Nafnið er
prentað í rauðu ásamt hamri og
sigð og slagorðinu “Herinn burt.
Island úr Nató.“. Á forsíðu
annars blaðs, var nafnið Muninn
og á móti því var hakakrossinn
og undir því öflu stóð: EIN
ÞJOÐ EITT RÍKI EINN
FORINGI EINN VILJI!
I fertugasta og sjötta árgangi
dofnar heldur yfir byltingunni
og eitt blaðið er meira að segja
gefið út af hægri mönnum í skól-
anum.
I fertugasta og sjöunda árgangi
fær blaðið aftur nafnið Muninn
og fer eftir það að nálgast þau
blöð í sniði sem voru gefin út
fyrir Byltinguna.
Fimmtíu ára afmælisblaðið er
mjög líkt þeim blöðum sem gefin
voru út fyrir Byltinguna og Mun-
inn hefur verið með svipuðu
sniði eftir það. Síðustu fimmtán
ár eða svo hefur blaðið jafnan
verið fjölritað í skólanum. Prent-
un hefur verið misgóð og pappír
ffernur óvandaður, enda hefur
verið leitast við að halda kostnaði
í lágmarki og engar auglýsingar
hafa verið í blaðinu til að mæta
honum. Út af þessu hefur þó
brugðið síðustu tvö eða þrjú árin
og meira lagt upp úr útliti og frá-
gangi.
Muninn er blað Hugins, Skóla-
félags M.A., og samkvæmt
lögum þess skal hann koma út
reglulega og vera málgagn félags-
ins og þar með nemenda allra.
04*0-