Muninn - 29.10.1987, Side 43
Nýlega var skipt um þakklæðn-
ingu á norðurhluta Gamla skóla.
Dugði þetta vel um sinn ”(Saga
Menntaskólans á Akureyri II,
bls.46,d.2). Greinilegt er að
ýmislegt hefur gengið á og enn
gátu kynskiptir bekkir ekki farið
í leikfimi, en úr því rættist
nokkru seinna.
I sumar var unnið að endurbót-
um bæði á sturtuklefa og
búningsherbergjum og lauk
þeim rétt áður en kennsla hófst í
ár. Fjósið er nú orðið hið
vistlegasta íþróttahús og verður
sjálfsagt mikil aðsókn að því í ár
eftir því sem reynsla fyrri ára
sýnir okkur.
Viðhald á Möðruvöllum hefur
ekki verið mikið enn sem komið
er. Nú er svo komið að járna-
bindingin í veggjum er farin að
sprengja frá sér steypuna og sést
víða í ryðgað jám. Búast má við
að að eitthvað verði farið að
endurnýja bygginguna. Meðal
annars eru áform uppi um að
auka kennslurými og tengjast
þau öll Möðruvallahúsinu.
20 af 80 herbergjum heimavist-
ar hafa verið endurnýjuð á und-
aníbmum mánuðum og er það til
mikilla bóta fýrir heimavistar-
búa. Hillum hefur verið fjölgað
og rúmin hafa verið endurnýjuð.
Gert er ráð fýrir að einn gangur
verði tekinn í gegn í vetur og her-
bergi lagfærð, þá verður anddyri
málað, teppalagt og svo má lengi
telja. Heimavistin er fýrir löngu
orðin of h'til, og er nú bara tíma-
spursmál hvenær hafist verður
handa við stóra viðbyggingu við
vistina. í henni mun verða pláss
fýrir 110 nemendur, 100 í tveggja
manna herbergjum og 10 í eins
manns herbergjum. Mun sú við-
bygging bæta mjög úr húsnæðis-
skorti nemenda hér á Akureyri.
Núna er ekki langt í það að haf-
ist verði handa við byggingu nátt-
úruvísindastofnunar á lóð skól-
ans, nánar tiltekið á fótboltavell-
inum sem er suð-suð-vestan við
Heimavistina. Mun þessi bygg-
ing hýsa Náttúrugripasafn Akur-
í fyrra var tréverki á burstum
skólans komið í fýrra horf.
eyrarbæjar sem nú er í sama húsi
og 'Iönlistarskólinn og er í hús-
næðisskorti þar. Einnig verða
þarna kennslustofur og ýmislegt
fleira sem við kemur náttúruvís-
indum af ýmsu tagi. Eflaust mun
þessi stofnun gera Menntaskól-
anum kleift að brydda upp á
mörgum nýjungum í náttúru-
fræðikennslu og auka við þá hlið
náttúrufræðideildarinnar sem
snýr að náttúruvísindum ýmis
konar.
Þá er lokið þessu stutta ágripi.
Ég vona að þið hafið haft gagn og
gaman af.
Jón Hjalti Ásmundsson.
Síðasta nýbygging við M.A.
áwz, 43