Muninn - 29.10.1987, Side 40
Saga skólans er orðin löng og
viðburðarík. Með þessari grein
ætla ég að kynna fyrir nemend-
um, þá helst nýnemum, sögu
skólans í sem stystu máli. Einnig
mun ég Qalla aðeins um fram-
tíðaráform í byggingum við skól-
ann. Heiti greinarinnar er ”29”
og kann ýmsum að finnast það
skrýtið, en það er vegna þess að
margir atburðir gerðust 29. ein-
hvers mánaðar, þar á meðal á
Muninn afmæli þann 29. októ-
ber.
Ýmislegt hefur breyst á þessum
107 árum sem skólinn hefur
starfað, t.d. hafa sjö skólameist-
arar verið við völd: Jón A.
Hjaltalín (1880-1908), Stefán
Stefánsson (1908-1921), Sigurð-
ur Guðmundsson (1921-1947),
Þórarinn Björnsson (1948-1968),
Steindór Jónas Steindórsson
(1968-1972), Tfyggvi Gíslason
(1972-1986) og núna situr Jó-
hann Sigurjónsson að völdum.
En þá er tími til kominn að hefja
ágripið, það hefst á árinu 1887:
Á Alþingi 1877 var lagt fram
frumvarp í 6 greinum um stofn-
un gagnfræðaskóla á Möðruvöll-
um og það samþykkt 29. ágúst
sama ár. Þann 1. október 1880
var Möðruvallaskóli svo hátíð-
lega settur, og hefst þar með saga
Menntaskólans á Akureyri eins
og hann heitir nú.
Á árunum 1890 til 1900 voru
uppi ýmsar raddir um að flytja
skólann frá Möðruvöllum til
Akureyrar. Bruninn að Möðru-
Fjósið er nýendurbætt.
völlum 22. mars 1902 flýtti fyrir
þessum flutningi. Skólinn var
um sinn á hrakhólum en þann
29. apríl 1904 var hafist handa
við að reisa nýtt skólahús eftir
teikningum Snorra Jónssonar.
Nefnist þetta hús nú Gamli skóli
í daglegu tali nemenda. Um
haustið sama ár hófst kennsla í
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
og var húsið tilbúið að fullu síð-
ari hluta árs 1905. Enn vantaði
þó tvö ár til viðbótar til að hægt
væri að hefja leikfimikennslu í
hinu gamla fjósi skólameistara.
Á næstu árum bætast svo
kennslustofur við í skólahúsinu
og ýmsar endurbætur eru
gerðar.
Meðal ákvæða í lögum um
Gagnfræðaskólann á Akureyri
var grein sem kvað á um það að
í húsinu skyldu vera vistir fyrir
um 45-50 manns og voru her-
bergi bæði í kjallara og á jarðhæð
og síðar á efstu hæð og í risi.
Vistin í Gamla skóla var notuð
alveg fram undir 1973, en síðan
hafa engir nemendur búið í
gamla skólahúsinu.
í níu ár, frá því 1921 til 1930
hafði verið karpað nær hvert ár á
Alþingi um breytingu á gagn-
fræðaskólanum. Áhugi var
mikill hjá heimamönnum að
breyta skólanum í menntaskóla,
en margir, aðallega syðra, fundu
því flest til foráttu. Þann 5. apríl
1930 var þó loks samþykkt
Það var tími til kominn.
40. //«,
0“$ á k