Muninn - 29.10.1987, Side 38
Á Brauðskorpunni
einni saman
Frá FRAMA
í þessari grein ætlum við að fara nokkrum orðum um það
hversu nauðsynlegt er að geta verslað innandyra í vondum
veðrum, og rifja í því sambandi upp ffásögn af frændkonu
okkar ágætri.
Frændkona þessi á heima í höfuðborginni okkar, einmitt á
þeim stað þar sem áður var stutt í búðina á horninu, en sú búð
er löngu farin á hausinn eins og aðrar búðir á öðrum hornum.
í stað þeirra er hins vegar risin stór og mikil verslun í hinum
enda bæjarins, allt saman útreiknað til að ná sem lægstu verði,
og til að gott sé að versla þar í stórhríð.
Og svo var það eitt sinn í desemberstórhríð að frændkonan
varð mjólkurlaus og úr mjög vöndu að ráða. Fyrst er nú til að
taka að hún er einstætt foreldri (fór frá karlinum því hann var
farinn að berja hana í framan), og í öðru lagi er hún bíllaus. En
allt í einu hugkvæmdist henni Brauðskorpan, þessi mikla
marmarahöll kaupmennskunnar. Svo hún gekk af stað út á
næstu strætóstoppistöð, í ullarkápu og sérstökum einstæðings
nælonsokkum sem eru þeim kostum gæddir að nudda og örva
fæturna svo, að það verður hreinasta unun að ganga. Þegar hún
svo steig út nálægt Brauðskorpunni umluktu hana svo háir
ruðningar að ekki sá til neinnar áttar nema upp í loft (en þangað
sá raunar ekki heldur íyrir hríðinni). En frændkonan lét þetta
ekki á sig fá. Hún arkaði upp ruðninginn, eða allavega reyndi,
en ruðningar eru einstæðum foreldrum engu greiðfærari en
öðru fólki. Þegar upp kom var hún farin að skríða, búin að snúa
annan ökklann og orðin aum í hnjánum. Þó komst hún niður
hinum megin, náði taki á ljósastaur og hékk þar eins og
fyllibytta. Því var ekki að sökum að spyrja, lögreglan stakk
henni umsvifalaust í steininn, enda ölvun á almannafæri í
andstöðu við lögin. Þar sat konan fram á morgun, en þegar
henni var sleppt hafði einn krakkinn drukknað í baðinu, annar
skorið sig með hnífi, og sá þriðji kveikt í blokkinni.
Af þessari sögu má sjá nauðsyn þess að hægt sé að versla
innandyra í stórhríðum.
Blessaður sé leiðtogi vor.
38 <• '//«//e//;/ áw