Muninn - 29.10.1987, Side 20
voru í nágrenninu. Eins og
gefur að skilja er allt frekar
ódýrt á eyjunni miðað við ís-
land en þó er eyjan dýr miðað
við Spán og Mallorka. Hægt
var að fá ódýran bjór á 15
krónur, ódýrasta hvítvínið var
á þrjátíukall og ódýrasti vodk-
inn á 160 krónur. Ekki var það
Skál.
nú dýrt heillin, enda nýttu
margir sér þessi vildarkjör og
nokkrir muna eigi mikið frá
nokkrum dögum í upphafi
ferðarinnar en skildu það svo
eftir nokkra daga að vínið yrði
til allan tímann svo að ekki
þyrfti að flýta sér að drekka
það áður en það kláraðist.
Flestir komust
heilir út úr
ökuferðunum
Næstu daga var ýmislegt sér
til gamans gert. Aðalatvinnu-
vegur eyjarskeggja er greini-
lega ferðamannaiðnaður og
sást hann í mörgum myndum.
Meðal annars er mikið byggt á
eyjunni og eru það þá í nærri
öllum tilfellum hótel. Veit-
ingahús eru í röðum hlið við
hlið í mörgum götum Ibiza og
barir eru þar inn á milli og
20 - //<///</?/! ó/Y áv'O'
virðist ekkert veitingahús líða
skort á viðskiptavinum né
heldur barirnir. Fiskimanna-
hverfi er miðbær Ibiza og þar
eru mjóar hellulagðar götur og
við þær standa verslanir og
veitingahús í röðum. Um
þessar götur höfðu margir
farið áður en haldið var til
London enda var margt að
skoða. Túgir bíla- og
vespuleiga eru á Ibiza og
margir fengu sér einhvers-
konar farartæki í einhvern
tíma. Flestir komust heilir út
úr ökuferðunum en nokkrir
flugu eftirminnilega á haus-
inn og var slysatíðni meðal
menntskælinga þetta árið
nokkuð í hærrar lagi og ekki
var fólk í vandræðum með að-
ferðir til að slasa sig (taki til
sín sem eiga), en ekki verður
farið út í þá sálma neitt nánar
hér! Ökuferð ein mikil var
farin einn góðan veðurdag og
eyjan skoðuð, en hún er ekki
nema um 35 km á lengd.
Stoppað var á nokkrum krám,
sumir brugðu sér á sjóskíði og
gúmmíhringi og sýndu Polar-
isku fararstjórarnir þar mikil
tilþrif þó aðrir fararstjórar hafi
haldið sig í hæfilegri fjarlægð.
Einnig voru stærstu dropa-
steinshellar eyjarinnar kann-
aðir í leiðinni.
Stripluðust á
ekta nektarströnd
Við ströndina var hægt að
gera ýmislegt fleira en að
liggja í sólbaði. Til dæmis
voru margar seglbrettaleigur,
sjóskíðaleigur voru einnig á
stöku stað. Einnig var hægt að
fara á sjóslöngu, en á hana
settust fimm eða sex og héldu
sér vel og svo var hún dregin á
fulla ferð af hraðbát og reyndi
ökumaður hans að velta
slöngunni svo að allir hentust
af. TVíbytnur var líka hægt að
leigja sér, en þó vantaði oftast
góðan vind fyrir svoleiðis
íþróttir. Gaman var að kafa og
entust nokkrir í það að kafa í
einn til tvo daga. Voru þá
keypt köfunargler og öndun-
arrör og líf sjávarins kannað á
nokkrum stöðum. Flóar eru
margir á eyjunni og voru
nokkrir þeirra vel fallnir til
köfunar. Einnig urðu nokkrir
drengir svo frægir að striplast
um á ekta nektarströnd.
Miss Holliday,
Erotika, Sexy,
Sunbrown...
Þá er það næturlífið. Stelp-
urnar gerðu mest af því að fara
á diskótekin á staðnum, enda
fengu þær alltaf ókeypis inn,
hvort sem þær voru með eða
án boðsmiða, og fóru þá aðal-
lega á Kiss, Angel’s, Space,
Papagoya eða Latino. Ku-
diskótekið var inni á miðri
eyju og er það stærsta diskó-
tekið við Miðjarðarhafið,
tekur um 4000 manns, enda
er það að öllu leyti utanhúss,
byggt í kringum stóra sund-
laug. Á smærri diskótekunum
voru allskonar uppákomur
hvert kvöld og voru valdar
Miss Holliday, Erotika, Sexy,
Sunbrown, Thnga svo eitthvað
sé talið, auk þess sem Miss
Kiss o.s.frv. voru valdar.
Mister Kiss og Mister Angel’s
voru einstaka sinnum valdir.
Aldrei voru íslenskar stelpur
Hahemm...