Muninn - 29.10.1987, Blaðsíða 19
Ibiþafaðaðnið
Fulltrúi 4. bekkjar í ritstjóm segir frá Spánarferð
Hlakkar þú til? Þessi spurn-
ing hljómaði í eyrum þáver-
andi þriðjubekkinga í allt
sumar og svarið var án undan-
tekninga jákvætt ásamt
nokkrum mjög sterkum lýs-
ingarorðum. Spurningin vís-
aði til komandi ferðar 100 nú-
verandi fjórðubekkinga til
Ibiza, eyjarinnar hvítu, og
Lundúna, borgarinnar svörtu
(þó var nú verið að þrífa
hana).
Lagt var af stað til Keflavíkur
frá Loftleiðahótelinu síðla
dags þann sjöunda september
1987. Eftir þessum degi höfðu
margir beðið enda gekk allt
fljótt og vel fyrir sig og þegar
komið var í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar fengu margir sér
sæti við barborðið. Fyrr en
varði var kallað út í flugvél og
hófst þar með fjögurra
klukkustunda veisla þar sem
á borðum var matur og vín.
Margir höfðu nú þynnst all-
verulega er komið var til Ibiza
og þegar við stigum út úr vél-
inni lentum við á hitavegg,
minnst 30 stiga hita og logni
að sjálfsögðu. Þessu voru ekki
margir viðbúnir og var ekki
laust við að sumir vildu kom-
ast inn í flugvél aftur. Ekki var
vegabréfsskoðunin mikið
vandamál og um hálftíma eftir
að flugvélin lenti vorum við-
komin að íbúðahótelinu þar
sem við áttum að halda til
næstu þrjár vikurnar. Vel
gekk að skrá fólk í íbúðir og
voru yfirleitt fjórir saman í.
íbúð. I hverri íbúð var svo bað
með sturtu sem var óspart
notuð, eldhús með gaseldavél
og svo náttúrulega ómetanleg-
um ísskáp, og yfirleitt tvö
svefnherbergi.
Bjórinn á
15 krónur
Þá var ekki seinna vænna að
fara að kanna næturlíf þorps-
ins, það er að segja Ibiza-borg-
ar sem er höfuðborg eyjarinn-
ar. Héldu menn nú einir eða í
smærri hópum á þýskarabar-
inn til að byrja með en svo fóru
nú nokkrir á veitingahús sem
ÓWZ 19