Muninn

Árgangur

Muninn - 29.10.1987, Síða 34

Muninn - 29.10.1987, Síða 34
Ww/dm 60 cm Litið um öxl í tilefni dagsins Ritstjórinn sleikir á sérfingurinn ogflettir varlega gömlum, gulnuðum blöðum í dimmri dýflissu mettaðri af aldagömlu ryki og alsettri kóngulóarvef og dordinglaþráðum. Laugardagurinn 29. október 1927 var merkisdagur í sögu Menntaskólans á Akureyri, sem reyndar hét þá Gagnfræðaskól- inn á Akureyri. Þennan dag kom þáverandi dóms— og kirkju- málaráðherra Jónas Jónsson og áður en kennsla hófst las hann eftirfarandi bréf að öllum nem- endum og kennurum við- stöddum: “Dóms og kirkjumálaráðu- neytið Reykjavík, 25. október 1927 Á fundi 22. október s.l. hefir ráðuneytið ákveðið, að Gagn- fræðaskólinn á Akureyri skuli hjer eftir hafa heimild til þess að halda uppi lærdómsdeild menta- skólans, samkvæmt reglugjörð frá 1908, með tveim minniháttar breytingum viðvíkjandi aldurs- takmarki og sumarleyfi. Skal þessi deild hafa rjett til að út- skrifa stúdenta og fari próf þeirra, þar-til öðru vísi verður ákveðið með lögum, að öllu fram eftir ákvæðum gildandi próf- reglugerða máladeildar menta- skólans, enda veiti allan sama rjett. Áður en kemur að prófi næsta vor, mun ráðuneytið gefa út reglugerð til handa Gagnfræða- skólanum, vegna þessara áður- nefndu breytinga á lengd og starfsháttum skólans. Jónas Jónsson /Sigfús M. Johnsen“ Þegar ráðherrann hafði lesið bréfið skýrði hann sína afstöðu tilmenntaskólamálsins, en þessi heimild sem veitt var með bréf- inu var ákaflega umdeild. Að þeirri ræðu lokinni var honum Reglugjörð fyrir skólamálfundafjelagsblaðið ,,Muninn“. 1. gr. Blaðið heitir „Muninn“. 2. gr. Blaðið er gefið út af málfundafjelaginu „Huginn", og skal það fjölritað, og öllum fjelagsmönnum gefast kostur á að eignast það við sannvirði. 3. gr. Stjórn blaðsins skulu skipa tveir menn, og varamenn: rit- stjóri og gjaldkeri. Skulu þeir kosnir á aðalfundi fjelagsins og starfa í samráði við stjórn þess. 4. gr. Ritstjóri skal veita móttöku öllu því er blaðinu berst til birtingar, og sjá um útgáfu þess. Gjaldkeri annast afgreiðslu alla og innheimtu. 5. gr. Blaðið skal eigi sjaldnar út koma en þriðju hverja viku, og aukablöð þegar föng eru á. 6. gr. Efni þess skal ávalt leitast við að hafa sem fjölbreyttast. Sögur, kvæði, ritgerðir ýmislegs efnis, fróðleik og skrítlur, frumsamið eða þýtt, og skal ritstjóri hafa fengið það í hendur 3—5 dögum fyrir útgáfudag. 7. gr. Eigi rná í blaðinu birta nafnlausar greinar frá öðrum en ritstjóra, en heimilt skal öllum að rita undir dulnefni, þó þannig að ritstjóri viti hið rjetta nafn. 8. gr. Stærð blaðsins skal óákveðin, en þó aldrei minni en ein örk i fullstóru broti. Muninn 1. tbl. 1. árg. 1927.

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.