Muninn

Árgangur

Muninn - 29.10.1987, Blaðsíða 42

Muninn - 29.10.1987, Blaðsíða 42
frumvarp í 21 grein til laga um Menntaskólann á Akureyri og þar með var hann formlega stofn- settur. Nú fór nemendum sífellt fjölg- andi og gerðist þá brýnna að fá fleiri herbergi fyrir nemendur. Þann 27. ágúst 1946 hófst svo bygging heimavistarinnar og var hún í nær tvo áratugi í byggingu. Þá tók við bygging annars húss, . en hafist var handa við að reisa Möðruvelli 29. júlí 1967. í þessu húsi var gert ráð fyrir átta kennslustofum og stórum sal sem nota ætti undir samkomur nemenda og losa átti þar með gamla Sal ”við mikla og hættulega áreynslu, er allt virtist ætla niður að keyra undan þunga dansandi mannfjölda, svo að gólf svignaði og gekk í bylgjum” (Saga Menntaskólans á Akureyri II, bls.57,d.l). Skólameistara Steindóri Steindórssyni var af- hent húsið tveimur árum seinna, 29. ágúst 1969, við hátíðlega at- höfh. Þá var húsinu gefið það nafn sem það ber enn í dag. Nokkuð erum við nú farin að nálgast vora tíma og hefur lítið verið um nýbyggingar á vegum skólans undanfarin ár, nema þá helst viðbyggingin við fjósið sem hýsir verkstæði skólans og var tími til kominn að stækka það. Aðallega hefur verið unnið að endurbótum á húsunum. Þakið á gamla skólanum hefur verið endurnýjað á síðustu árum, auk þess sem tréverki á burstum skólans hefur verið komið í fýrra horf. Brunaæfingar eru reglu- lega og var ekki vanþörf á því að koma upp brunavörnum í þessu 82. ára gamla húsi, enda er það mjög eldfimt (sjá jólablað Mun- ins 1986 bls. 34). Ekki er það í fýrsta sinn í ár sem viðgerð á fjósinu fer fram. Syðsti hluti þessa íþróttahúss, þ.e.a.s. þar sem sturtuklefarnir eru, var á sínum tíma hesthús og fjós Jóns Hjaltalín skólameistara. Síðar var svo bætt við belg norð- an við hesthúsið og því sjálfu breytt í búnings og sturtuklefa. Oftar en ekki hafa sturtu- klefarnir lekið og skemmt út frá sér. Einnig hefur kuldi valdið kennslustoppi. Veturinn 1944 til 1945 fór fram gagnger viðgerð á leikfimihúsinu og dugði sú viðgerð fram til 1966. ”Svo var komið haustið 1966 að leikfimihúsið var ónothæft vegna leka úr baðklefa sem bæði eyðilagði einangrun hitaleiðslu og setti raflögn í hættu. Þá hafði gólfkuldi ætíð verið mesta vandamál. Mátti heita að stundum væri gólfið svellað á morgnana. Ekkert hafði þá verið gert til viðhalds húsinu síðan stóra viðgerðin fór fram. En nú varð ekki undan ekist, er yfirmenn brunamála bönnuðu notkun hússins, nema viðgerð færi fram. Fór þá fram gagnger umbót á baðklefa, hitadunkar voru einangraðir að nýju og komið fýrir dælingu á heitu lofti frá kyndiklefa undir gólfið. íþróttaaðstaða menntskælinga batnaði til muna eftir að íþróttahöllin var tekin í notkun. 4 2 r rr ám
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.