Muninn - 29.10.1987, Qupperneq 45
busaballið vegna þess að fólk
hreinlega veiktist eftir þessa
vígslu. Ég veit að sumir lágu
bara í flensu yfir helgina út af
þessari vígslu. Manni kólnaði
í þessari göngu.
Finnst þér þetta vera of-
beldisathöfn, eins og segir
t.d. í blöðunum Þorvaldur?
Nei ég held að þetta sé nokkuð
sem allir þurfa og verða að
ganga í gegnum. Mér finnst
sjálfsagt að svona athöfn skuli
vera til að vígja busa inní tölu
nemenda.
Hvemig finnst þér bekk-
urinn sem þú ert í, fyrsti e,
Þorvaldur?
Hann er alveg ágætur.
Hvar stendur þú í póliták-
inni Þorvaldur?
Æth ég telji mig ekki til hægri-
kants.
Heldurðu að skólinn eigi
eftir að breyta þeim skoð-
unum Þorvaldur?
Nei ég verð að segja að ég hafi
ímugust á þessum vinstri
skoðunum.
Ætlar þú að láta til þín
taka innan FRÍMA, gerast
virkur í stjóm eðareyna t.d.
að verða formaður seinna
meir Þorvaldur?
Ég er nú ekki genginn í félagið
ennþá þannig að það er ó-
mögulegt að segja en ég er
metnaðargjarn að eðlisfari,
það gæti kannski endað
þannig einhvern daginn.
Verðurðu virkur í félags-
lífinu f vetur Þorvaldur?
Já ég hef alltaf verið virkur í
svoleiðis löguðu, er mikill
ballmaður og annað, mikill
gleðimaður!
Hver em annars þín helstu
áhugamál, svona fyrir utan
skólann Þorvaldur?
Áhugamál mitt er flug og allt
sem lýtur að flugvélum.
Hefurðu þá eitthvað lært
að fljúga Þorvaldur?
Já ég er búinn að vera í svif-
flugi í 3 ár og er kominn með
svifflugmannspróf.
í svifflugi segirðu, er það
ekki hreint og klárt sjálfs-
morð, stórhættulegt Þor-
valdur?
Nei, þetta er alls ekki hættu-
legt. Það var gerð könnun í
Þýskalandi á því hverjar aðal-
orsakir slysa á svifflugmönn-
um væru, en Þýskaland er eitt
mesta svifflugland í heimi.
Það kom í ljós að svifflugmenn
slösuðust oftar á leiðinni til
eða frá flugvöllunum en á vell-
inum sjálfum eða í loftinu,
þannig að þetta er ekki hættu-
legt, hvorki fyrir stelpur né
stráka.
Er eitthvað xun stelpur í
félaginu Þorvaldur?
Það tóku tvær stelpur sólópróf
(einflugspróf) í sumar og eru
þær þær fýrstu í nokkur ár.
Strákar virðast loða meira við
þetta.
Er þetta dýrt fyrir nema
Þorvaldur?
Ef stunda á flugið vel er það
náttúrulega dýrt, en það er
ekkert dýrara en aðrar íþróttir
t.d. skíðaiðkaxúr. Mesti
kostnaðurinn er meðan verið
eraðlæra, vegna þess að það
þarf að taka marga flugtíma á
stuttum tíma til að öðlast
þekkingu og reynslu, en síðan
þarf að halda þekkingunni við
og auka hana með tímanum.
Við þökkum nýnemanum
Þorvaldi kærlega fyrir
spjalfið.
Þeir vekja athygiL^
Skírteinismyndir við öll tækifæri
ijobmdasiofaL
Sími 96-23464PÁLS
áwZ' 45