Muninn

Årgang

Muninn - 29.10.1987, Side 50

Muninn - 29.10.1987, Side 50
Af hverju grænir snúðar? Höfundur: Sæ.Si. Eitt sinn bjuggu karl og kerling í koti Sínu. Sína, eigandi kotsins hét reyndar fullu nafni Hansína Sigurðardóttir en var oftast kölluð Sína Sig. Hún þjáðist af kvensjúkdómi sem nefnist legsteinar og þurfti hún því oftað leggjast fyrirvaralaust á sjúkrahús og slík skyndilega var af þeirri tegund rúmlega sem henni líkaði verst við. Þetta hafði slæm áhrif á sálarlíf hennar og af þeim orsökum snerist hún oft á hæli. Sína átti eiginmann, en hann datt í drullupytt og drukknaði því þetta var engin smáformaður. Sonur Sínu stundar hins vegar alifuglarækt í Kolbeinsey og elur hina bústnu fuglategund kepp-endur. Svo við snúum okkur aftur að karli og kerlingu þá áttu þau einnig við ýmis líkamleg vandamál að stríða. Karhnn fékk til dæmis árlega mikið og stórt munnangur, svokallað ár-angur og í slíku ástandi varð hann oft alveg ár-óður. Eitt sinn í slæmu kasti, tók hann bílinn og vildi yfir ás-aka en ók á-stand sem stóð upp úr veginum. Hlaust af því mikið slys á mönnum um heim allan og víðar. Karlinn þótti of hættulegur umhverfi Sínu og annarra vandamanna og var því stungið í svartholið. Þar hlaut hann öðrum föngum fremur mikla ástúð og umhyggju og fékk því viðumefhið ást-fanginn. Er kerhng frétti þetta settist hún í eldstóna og varð öskuvond. Því næst hljóp hún tilbygg-Inga, sem var kornbóndi á næsta bæ, og hrópaði upp yfir sig “Karlinn varð ær-Ingi, á leið út í búð-Ingi, og nú hefur hann mannorð sitt svert-Ingi“. Þau ákváðu svo að fara saman á Dagskrána en það er krá sem Dagur á Akureyri hefur nýlega opnað skammt norð-austur af Langanesi. Þar drukku þau sig djö-full og síðan hefur aldrei spurst til þeirra. Karlinn losnaði fljótlega úr varðhaldinu en fýrir mistök losnaði hann líka úr nærhaldinu. Það tafði ekki hið minnsta fýrir honum og hann lagði upp í langferð og samdi af því tilefni ferða-lag við eigin texta. Á leið sinni hitti hann undarlega veru sem kvaðst vera fjarvera og hún dró hann niður í heimkynni sín í þörunni og tók þegar til við að sauma nýtt nærhald handa karli, en vegna skorts á efnisvöntunarleysi nægði það ekki nema í framhald, svona rétt til að hylja fram-leiðsluna. Þeim varð vel til vina og hófu saman álarækt í formum og eru þaðan komnir hinir víðfrægu formálar. Búskapurinn blómstraði og þau seldu ála í sumar-búðir en ekki þó allar. Þau urðu rík og settu or-gel í hárið og þó fjarveran hefði aldrei bragðað vín og karlinn ekki drukkið lengi þá duttu þau samtíða án teljandi meiðsla. Karlinn sleit að vísu nauð-syn í hægri fæti en þau tókusamt til við að klára-vín allt er karlinn hafði átt en hann var blautur mjög í sínum yngri árum og var til dæmis drykk-felldur á barnaskólaprófi. Karlinn tók nú að horast niður og varð ó-gildur mjög.Hann lést skömmu síðar og var settur á líkhúsið þar sem búa ná-búar eins og að líkum lætur. Þar var hann færður úr öllum fötunum jafntyfirhöfnum sem undirbúningi. Honum var loks í mold-varpað og síðan ekki söguna meir. 50 -

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.