Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 29.10.1987, Qupperneq 56

Muninn - 29.10.1987, Qupperneq 56
Dularfullu kattahvörfin Eftír græna manninn og venjulegu vinina hans —Þá eru það dularfullu katta- hvörfin, 78. kafli. í Breiðholti tapaðist köttur, svartur með hvíta bringu, ljósbrúna rófu og grænan trefil, haha! Finn- andi hringklikk!... Leiðinlega fyrirmyndarút- varpsstöðin þagnaði skyndi- lega þegar Haukur slökkti á iitla mónóútvarpinu sínu. Hann horfði augnablik út um gluggann en snéri sér síðan snögglega við. Hann ieit á kjötleifarnar á eldhúsbekk- num, bölvað drasl. Hann beygði sig niður, dró út skúffu og tók upp piastpokarúllu. Hann ieit augnablik á leifar- nar, en gekk síðan hvatlega að eldhúsbekknum og mokaði leifunum ofan í poka og henti honum í ruslagatið frammi í stigahúsinu. Haukur henti sér ofan í leðurhægindastól og andvarpaði. Þetta hafði verið virkilega erfiður málsverður. Hann hentist skyndilega upp úr stólnum og reif upp hurð- ina á eldhússkápnum, teygði sig í lítinn pakka og tók úr honum tannstöngul. Á leið sinni að hægindastólnum kveikti hann á útvarpinu. —Hér er önnur tilkynning um týndan kött...klikk. Hann slökkti aftur á útvarp- inu og í því hringdi dyrabjall- an. Hann gekk til dyra og opnaði. Sigríður gamla á neðri hæðinni stóð skælbrosandi fyrir utan með þykka, gráa hárið sitt út í loftið. —Nei, góðan daginn Sigríður, sagði Haukur brosandi. —Sæll og blessaður, svaraði gamla konan og Haukur bauð henni inn og hellti kaffi í bolla handa henni. —Alveg er það merkilegt hvað týnist af köttum núorðið, út- varpsstöðvamar eru yfirfullar af tilkynningum um týnda ketti. —Já, alveg er það nú merki- legt, svaraði Haukur og hellti kaffi í bollann sinn. Sigríður byrjaði að tauta um frænku sína sem hefði dottið í hálku og brotið handlegg og gler- augu. Viku síðar renndi bíll upp að fjölbýlishúsinu sem Haukur bjó í. Það var hann sjálfur. Hann nötraði eilítið, en það var svo sem ekkert skrýtið, hann var framkvæmdastjóri fyrirtækis sem telst stórt á íslenskan mælikvarða og á herðum hans hvíldi mikil á- byrð. Fyrirtækið hafði nýlega hlotið nafnbótina Besta nýja fyrirtækið. Þó var það ekki streitan sem olli skjálftanum. Það sem olh honum var það sama og olli því að augun voru grænleit og hálf-sjálflýsandi. Haukur gekk að fjölbýlishús- inu en í stað þess að fara inn gekk hann með húsveggnum og fyrir hornið. Hann gekk afturfyrir bygginguna og leit yfir garðinn. Hann var prýdd- ur mörgum mnnum og trjám sem voru í fullum skrúða, enda mitt sumar. Haukur sá kött læðast bak við einn runn- ann. Hann hélt niðri í sér andanum og horfði á köttinn. Skjálftinn jókst. Haukur læddist að kettinum, leit ró- lega í kringum sig og beygði sig síðan niður að honum. Eldsnöggt greip hann báðum höndum um köttinn og keyrði hann upp að bringunni. Hann reis rólega upp og leit í kring- um sig. Hann hélt kettinum innan við frakkakragann og gekk að fjölbýlishúsinu. Hann fór inn bakdyramegin, gekk í gegnum hjólageymsl- una og að lyftudyrunum. Hann nötraði eins og lauf í vindi. Lyftan kom niður eftir andartak. Þegar hún opnaðist stóð Sigríður gamla skæl- brosandi fyrir innan. Hún gekk út og heilsaði. Haukur tók skjálfandi undir kveðjuna og steig inn í lyftuna. Dyrnar lokuðust á eftir honum og hann leit snöggt í spegilinn. Augun voru skærgræn og sjálflýsandi. Hann bölvaði sjálfum sér fyrir að hafa ekki keypt sólgleraugu, þetta var allt of áberandi. Hendurnar skulfu þegar hann reif köttinn undan kraganum. Haukur horfði á hann augnablik og beit síðan eyrað af honum og tuggði með áfergju. Kötturinn spriklaði og hvæsti og Haukur 56

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.