Dýravinurinn - 01.01.1893, Qupperneq 16

Dýravinurinn - 01.01.1893, Qupperneq 16
r Kaflar úr fyrirlestri Ólafs prests Ólafssonar. »Hvernig er farið með þarfasta þjóninn?« sturinn er hin þarfasta og gagnlegasta skepna hjer á landi. |>að er vita- skuld, að öll húsdýr vor eru þörf, nytsöm og nauðsynleg, bæði hvert út af fyrir sig og i sambandi hvert við annað; en hið láng-þarfasta er samt hesturinn; ef vjer hefðum hann ekki, þá hefðum vjer lítið gagn af öðrum skepnum. Hann hjálpar ekki einasta mönnum út af fyrir sig til að lifa, heldur líka húsdýrum vorum. Hann ber manninn á baki sínu nærfelt alt, sem hann fer; hann flytur af- raksturinn af búinu bóndans á verzlunarstaðinn og kemur heim aptur með nauð- synjarnar, sem bóndinn fær fyrir búsafurðir sínar; hann ber heim heyið handa kúnum og ánum, handa lömbunum og sauðunum, Já! Hvað meira er, sjórinn, þetta mikla nægtabúr, sem skaparinn hefur gefið oss, yrði sveitamönnum að sára- litlum notum, ef ekki væri hesturinn; því án hans kæmum vjer ekki heim til vor fiskinum og heldur ekki þeim nauðsynjum, sem vjer fáum fyrir hann. í einu orði að segja, vjer gætum eigi ræktað jörðina, ekki haldið lífinu í öðrum skepnum og ekki í sjálfum oss, ef hesturinn væri ekki til; gæði jarðarinnar og blessun sjávar- ins yrðu oss án hans að litlum notum. Að fráteknum sjálfum manninum er hesturinn hin lángfallegasta skepna, sem til er á landi voru. Hvað sjáið þjer, sem er eins fagurt og fallegur og faungulegur hestur, sem reisir höfuðið, hringar makkann og eins og logar allur í fjöri? En það er best að taka það fram, að hesturinn er því að eins svona fall- egur, að skaparinn hafi skamtað honum fóðrið og að ekki sjáist á honum fingra- för miskunarleysisins og' þrælmennskunnar; það er með öðrum íslenskum orðum, að hann sje ekki horaður og meiddur, haltur og skakkur af illri meðferð. Hesturinn er hið sterkasta, afkastamesta, þolinmóðasta og þægasta hjú, sem nokkur húsbóndi hefur á heimili sínu. Hann tekur þegjandi við klyfjunum, sem húsbóndinn leggur á hann; hann þegir við formælingunum, sem bráðlyndir hranar gusa úr sjer yfir hann, ef þeim mislíkar, og hann tekur líka þegjandi við svipuhöggunum, sem of opt eru vís, ef eitthvað ber út af. Hann muðlar þegjandi allra-vestu rekjurnar og úrgánginn úr heyjunum og myglað og fúlt moð, sem hinar skepnurnar vilja ekki líta við. Hann fer þegjandi með alla bæjarhundana í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.