Dýravinurinn - 01.01.1893, Qupperneq 17

Dýravinurinn - 01.01.1893, Qupperneq 17
13 í hælunum út á gaddaða og bjarglitla jö'rðina frá hesthúsunum, ef hann hefur feingið fyrir náð að standa inni nóttina yfir; hann horfir þegjandi á töðuna borna í fjósið og gott úthey í fjárhúsin; hann fær að finna lyktina á veturna af heyinu, sem hann hefur borið heim í heygarðinn á sumrin. f>að er heppilegt fyrir suma hverja, að hestarnir mega til að þegja; það yrði ófagur dómur og vitnisburður, sem sumir húsbændur feingju, ef aumingja hestarnir gætu talað, Eingin skepna hjer á landi, að því er snertir sveitamenn, er eins hand- geingin manninum, og, að jeg komist svo að orði, eins samvaxin og samgróin lífi mannsins, eins og hesturinn. Frá því maðurinn fæðist og þángað til hann er kominn undir græna torfu, þá er hesturinn jafnan hans önnur hönd. — Yfirsetu- konan, hún ljósa okkar, þarf hest, presturinn, sem skírir okkur, þarf hest, læknir- inn, sem hjálpar okkur í sjúkdómum og í slysunum, þarf hest, piltarnir þurfa hest, þegar þeir fara að biðja sjer stúlku; brúðhjónin þurfa hesta, þegar þau eru gefin saman; stúlkurnar þurfa hest til þess að komast á mannfundi, svo þær þurfi ekki að setja ljós sitt undir mæliker. — þ>að er ekki hægt að hafa »neina skemtun fyrir fólkið« upp til sveita svo að hesturinn sje ekki við það riðinn. — Hann ber póst- inn og við’neldur því nær öllum samgaungum á landinu, hann ber okkur mennina nálega alt, sem vjer förum á landi, yfir fjöll og fyrnindi, yfir vatnsföll og tor- færur. — Og að lokum þurfa flestir af oss hest, þegar vjer förum um þverbak á síðasta áfángastaðinn. J>að er nú víst bæði mikið og gott verðkaup, sem þessi þarfa skepna með- tekur úr hendi húsbænda sinna fyrir alla þjónustu sína í þarfir mannanna. f>að mun mega geta nærra, að hesturinn er látinn njóta þess, að okkur er valla líft án hans. Jál f>etta skyldi maður halda, ef gjöra mætti ráð fyrir, að mennirnir væru eins og þeir ættu að vera. En því er ver, að reynslan bendir á annað en ætti að vera í þessu efni; þvi þrátt fyrir gagn það, sem hesturinn vinnur manninum, þá mun það ekki fjarri sanni, að maðurinn sje að öllu samtöldu hinn vesti óvinur, sem hesturinn á; það eru náttúrlega til heiðarlegar undantekningar frá þessu; en þetta er það almennasta. Yfir höfuð má segja það, að hesturinn sæti bæði ómaklegri og ósómasamlegri meðferð af hendi mannanna. Jeg vil bera það undir alla almennilega menn, sem hafa einhverja mann- úðartilfinningu í brjóstum sjer, hvort það sje ekki voðalegt, að hugsa út í það, þegar menn settu fjölda af hrossum og enda öðrum skepnum á vetur með þeirri ljósu meðvitund og þeirri föstu sannfæringu, að fleira eða færra hlyti, mætti til að drepast úr húngri og hor, þessum óttalegasta og kvalafyllsta dauðdaga, sem til er, já, hlyti að drepast, ef ekki yrði bezti vetur. Menn voru orðnir svo forhertir í svívirðingunni og samdauna miskunarleysinu, að menn gjörðu gaman að þessu og kölluðu það í ljótu spaugi, »að setja á guð og gaddinn«. í>að er einginn efi á því, að vísvitandi hor og húngurdauði heimtar þunga hefnd yfir hvern þann, sem valdur er að honum. Skaparinn hefur lagt skepn- urnar undir fætur vor mannanna til þess, að vjer notuðum þær á skynsamlegan og kristilegan hátt og sýndum þeim miskunn og mannúðlega meðferð, en ekki til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.